Skoðun

Vilja leiða þjóðina blinda til Brussel

Tómas Þór Þórðarson skrifar

Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, er lesendum Vísis að góðu kunnur enda notar hann þennan vettvang ítrekað þegar hann gefst upp á því að teygja og toga sannleikann á sinni eigin bloggsíðu.

Þessi mikli spunameistari ríkisstjórnarinnar skeiðaði í vikunni enn einu sinni fram á ritvöllinn og sakaði stjórnarandstöðuna um um að vilja hvorki hlusta á né tala við þjóðina um Evrópusambandið þegar það er hann sjálfur sem setur ávallt allan sannleika í þvottavélina og stillir á þeytivindu.

Það er ekki stjórnarandstaðan sem valdi hina úthugsuðu dagsetningu 29. ágúst sem tryggir það, að engin þingleg umræða fari fram um stöðu Íslands gagnvart ESB áður haldið verður í kjörklefann í sumarlok.

Ef allt gengur upp verður 2. umræðu um áframhaldandi aðlögunarviðræður við ESB lokið fyrir 29. maí og þá treystir ríkisstjórnin á að málið verði ekki tekið aftur upp á Alþingi fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Það er eitthvað sem hentar ríkisstjórninni vel enda forðast sumir í þessari ríkisstjórn umræðuna eins og heitan eldinn.

Það er heldur ekki stjórnarandstaðan sem segir að „fólk þurfi ekkert allar upplýsingar um Evrópusambandið í aðdraganda þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu“. Þetta sagði yfirmaður Þórðar Snæs, Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, á blaðamannafundi s.l. föstudag.

Í sakleysi mínu hélt ég að hún hefði mismælt sig en þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, ítrekaði þetta í flutningsræðu sinni um þingsályktunartillöguna á Alþingi á mánudaginn áttaði maður sig á að þetta voru ekki mismæli. Ríkisstjórnin segir fullum fetum að óþarfi sé að afla sér of mikilla upplýsinga – bara kjósa!

Þetta er hin ótrúlega lýðræðislega ríkisstjórn sem finnur stjórnarandstöðunni allt til foráttu. Hún hefur engan áhuga á að frekari umræða fari fram á Alþingi eftir 29. maí og hvað þá að íslenska þjóðin - sem hún treystir svo vel - kynni sér málin til hlítar. Þau segja þetta sjálf. Er þetta að treysta þjóðinni eða leiða hana áfram í blindni?

Höfundur er aðstoðarmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins og varaþingmaður.




Skoðun

Sjá meira


×