Handbolti

Rosa­leg loka­um­ferð: Þrjú lið geta unnið titil og þrjú í fallhættu

Sindri Sverrisson skrifar
Valsmenn þurfa sigur í kvöld til að tryggja sér deildarmeistaratitilinn.
Valsmenn þurfa sigur í kvöld til að tryggja sér deildarmeistaratitilinn. vísir/Anton

Valur, FH og Haukar berjast um deildarmeistaratitilinn í Olís-deild karla í handbolta, þegar lokaumferðin fer fram í kvöld. Einnig er hörð barátta um heimavallarrétt, sæti í úrslitakeppninni og um að forðast fall.

Sú ótrúlega staða er uppi að ekkert lið í deildinni siglir lygnan sjó, ef svo má segja. Öll hafa að einhverju að keppa í lokaumferðinni í kvöld og þar á meðal er barist um sjálfan deildarmeistaratitilinn.

Valsmenn eru með örlögin í eigin höndum en eiga krefjandi leik gegn ÍBV í Vestmannaeyjum.

FH treystir á hjálp frá Eyjamönnum en þarf þá líka að vinna ÍR sem verður að vinna til að forðast fall.

Aðeins neðsta lið deildarinnar fellur beint niður í Grill 66-deildina en næstneðsta liðið fer í umspil. Átta efstu liðin fara í úrslitakeppnina þar sem fjögur efstu liðin hafa heimavallarrétt í fyrstu umferð.

Leikir kvöldsins og staðan í Olís-deild karla.Vísir

Hafa ber í huga að verði lið jöfn að stigum þá ráða innbyrðis úrslit því hvort þeirra endar ofar.

Svona eru möguleikarnir hjá hverju liði fyrir sig, fyrir kvöldið:

Valur: Deildarmeistari með sigri gegn ÍBV í Eyjum. Einnig deildarmeistari með jafntefli ef FH vinnur ekki +6 marka sigur, því Valur og FH eru jöfn í innbyrðis úrslitum. Tapi Valur þarf liðið að treysta á að FH og Haukar tapi sínum leikjum.

FH: Tryggir sér 2. sæti með sigri gegn ÍR en getur einnig náð 1. sæti ef Valur vinnur ekki í Eyjum. Ef Valur gerir jafntefli þarf FH +6 marka sigur til að komast upp fyrir Val. FH getur misst Hauka upp fyrir sig með tapi.

Haukar: Öruggir með að minnsta kosti 3. sæti. Komast upp fyrir FH með sigri ef FH vinnur ekki ÍR. Deildarmeistarar með sigri aðeins ef Haukar og FH tapa bæði.

ÍBV: Tryggir sér 4. sæti og heimavallarrétt með jafntefli eða sigri gegn Val. Endar í 5. sæti og missir heimavallarréttinn til KA með tapi, þá og því aðeins að KA-menn vinni Þór.

KA: Gæti endað í 4., 5. eða 6. sæti. Þarf sigur gegn Þór og treysta á að ÍBV tapi, til að ná 4. sæti og eiga þá heimavallarréttinn gegn ÍBV í 8-liða úrslitum. Gæti misst Aftureldingu upp fyrir sig með tapi eða jafntefli.

Afturelding: Kemst upp fyrir KA í 5. sæti með sigri, ef KA vinnur ekki Þór. Getur ekki náð ÍBV vegna innbyrðis úrslita.

Fram: Endar í 7. sæti, eða þá í besta falli í 6. sæti vinni liðið Stjörnuna og Afturelding tapi gegn Selfossi.

HK: Situr í 8. sæti, síðasta sætinu inn í úrslitakeppni, og tryggir sér það með sigri gegn Haukum. Ef HK tapar getur Þór stolið 8. sætinu með sigri gegn KA.

Þór: Getur ekki fallið en þarf sigur gegn KA og tap hjá HK til að komast í 8. sæti og í úrslitakeppnina.

Selfoss: Getur ekki endað neðst og ekki komist ofar. Ef Selfoss tapar og Stjarnan vinnur endar Selfoss næstneðst og þarf að fara í fallumspilið.

Stjarnan: Tryggir sæti sitt í deildinni með sigri í kvöld ef Selfoss vinnur ekki Aftureldingu. Endar annars næstneðst nema að ÍR vinni FH og Stjarnan tapi gegn Fram.

ÍR: Þarf að vinna FH og treysta á að Stjarnan vinni ekki Fram. Annars falla ÍR-ingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×