Þór - KA 31-31 | Allt jafnt í æsispennandi Akureyrarslag Árni Gísli Magnússon skrifar 12. mars 2026 22:00 vísir/Diego Þór og KA mættust í æsispennandi bæjarslag í lokaumferð Olís-deildar karla í handbolta nú í kvöld fyrir troðfullri Íþróttahöll. Það fór svo að liðin skildu jöfn, 31-31, eftir dramatískar lokamínútur og montrétturinn bíður því um sinn beggja megin við Glerána. Þórsarar voru fyrir leikinn sloppnir við fall en gátu með sigri og hagstæðum úrslitum tryggt sér sæti í úrslitakeppninni á meðan KA þurfti að sækja sigur til að fá heimavallarrétt í sínu einvígi. Gestirnir af brekkunni byrjuðu leikinn mun betur og komust í 1-4 forystu eftir rúman fimm mínútna leik. Þórsarar bitu aðeins frá sér en aftur náðu KA-menn góðri forystu um miðbik hálfleiksins, 5-9. Heimamenn vöknuðu þá til lífsins og fóru að nýta færin sín betur ásamt því að fá smá markvörslu en Nikola Radovanovic varði ekki skot fyrr en eftir næstum 15 mínútur. Þór komst yfir, 12-11, en forystan varði ekki lengi. Næstu mínútur voru erfiðar fyrir Þórsara sem fóru illa með boltann í sókninni og fengu auk þess nokkrar brottvísanir sem hjálpuðu ekki til. Staðan í hálfleik 15-17 fyrir KA og leikurinn galopinn. Jafnræði var með liðunum þegar síðari hálfleikur fór af stað en KA-menn náðu muninum aldrei í meira en tvö til þrjú mörk. Radovanovic fór að verja fleiri bolta í Þórs sem hafði bráðvantað og komust Þórsarar alltaf betur og betur inn í leikinn sem var æsispennandi eins og alvöru bæjarslagur á að vera. Nokkuð var um stympingar og átök í leiknum og fékk Oddur Grétarsson að líta rauða spjaldið þegar rúmar 5 mínútur voru eftir og staðan jöfn en Þórsarar voru þá nýbúnir að ná forystunni og staðan 28-27.Þórsarar fóru nokkuð illa að ráði sínu í næstu tveimur sóknum sem KA nýtti sér með því að skora tvisvar í tómt markið hinu megin þar sem Þórsarar tóku markmanninn út af vegna brottvísunar Odds. Síðustu mínúturnar voru hreint æsispennandi og ætlaði allt um koll að keyra í húsinu. KA-menn komust yfir 29-30 og 30-31 en Brynjar Hólm Grétarsson tók það ekki í mál að tapa aftur fyrir þeim gulklæddu og skoraði lokamark leiksins nokkrum sekúndum áður en klukkan glumdi og niðurstaðan 31-31 jafntefli í ótrúlegri stemningu í Íþróttahöllinni. Atvik leiksins Kannski ekki fallegasti handboltaleikur sem maður hefur séð en af nægu að taka. Stærsta atvikið endar þó sem jöfnunarmark Þórsara, sem þýðir í þokkabót að KA-menn fá ekki heimaleikjarétt gegn Eyjamönnum sem þeir mæta í fyrstu umferð úrslitakeppninnar og því munar um minna. Stjörnur og skúrkar Brynjar Hólm endaði með átta mörk úr tíu skotum og átti frábæran leik í vörninni líka sem endranær.Þórður Tandri var öflugur í vörninni og skoraði auk þess fjögur mörk.Hákon Ingi Halldórsson var öryggið uppmálað á vítalínunni en hann endaði með 8 mörk og þar af 7 úr vítum. Einar Rafn Eiðsson var lang atkvæðamestur í liði KA með 12 mörk úr 16 skotum.Á eftir honum var Giorgi Dikhaminjia með 7 mörk.Ágúst Elí átti góðan leik og varði 16 bolta sem gerir 36% markvörslu og stóðu Daníel Matthíasson og Einar Birgir heldur betur pliktina í vörninni fyrir framan hann. Dómarinn Einn allra erfiðasti leikur sem hægt er að dæma og komust þeir Anton og Jónas ágætlega frá verkefninu en mér fannst þeir á tímabili gefa of margar óþarfa tveggja mínútna brottvísanir.Þeir gerðu vel framan af í að reka menn ekki út fyrir einhverjar smá stympingar eins og verða alltaf í þessum leikjum en undir lokin fékk Oddur Grétarsson rautt spjald sem getur vel verið að hafi átt rétt á sér en látum sérfræðingana um að rýna í það í sjónvarpinu góða. Stemning og umgjörð Besta stemning sem þú finnur á handboltaleik á Íslandi er á milli þessara liða og var kvöldið í kvöld svo sannarlega engin undantekning. Gjörsamlega troðfull Íþróttahöll þar sem stuðningsmenn beggja liða mættu vel og létu heldur betur í sér heyra. Leikur sem þessi er frábær fyrir bæjarfélagið og sýnir að það eiga svo sannarlega að tvö félög eigi og muni alltaf verða til staðar í bænum.Þórsarar voru í ljósashow í leikmannakynningunni sem var einnig einkar flott að sjá. Viðtöl „Alvöru viðburður hérna í Höllinni“ „Þetta var náttúrulega bara algjör adrenalín leikur. Allt í botni og svaka orka í húsinu og virkilega skemmtilegur leikur þó handboltinn hafi ekkert verið eitthvað frábær en bara gríðarlega svekktur að vinna ekki því við vorum yfir í lokin og þeir jafna og það er auðvitað grátlega svekkjandi“, sagði Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA, eftir dramatískt jafntefli gegn grönnunum í Þór í lokaumferð Olís deildar karla. Þór tapaði boltanum þónokkuð ásamt því að klúðra dauðafærum í fyrri hálfleik en KA menn nýttu sér það ekki nægilega til að ná sér í betra forskot og staðan í hálfleik var 15-17 KA í vil. „Við fáum tækifæri hérna bæði í hraðaupphlaupi og já sóknarleikurinn verður smá stirður þegar við eigum að refsa þeim betur en Þórsarar eru ólseigir og skoruðu mikið af samskonar mörkum þar sem við hefðum átt að gera betur.“ „Þetta var náttúrulega mjög skemmtilegt, þetta var alvöru viðburður hérna í Höllinni og bæði lið eiga mikið hrós skilið, mér fannst stemningin frábær og þetta er auðvitað lang skemmtilegast svona. Svona á þetta að vera“, sagði Andri um stemninguna í Höllinni sem var gjörsamlega frábær eins og alltaf þegar þessi lið mætast. KA endar í 5. sæti og mætir ÍBV í fyrstu umferð úrslitakeppninnar en liðin enduðu jöfn að stigum en ÍBV tekur 4. sætið á innbyrðisviðureignum og fær því heimavallarréttinn. Það er því eflaust sárt að hugsa til þess að vera einu marki frá því í dag að fá heimavallarréttinn sem hverfur með jöfnunarmarki Þórsara í lokin og mögulega tvær ferðir til Vestmannaeyja framundan. „Við ætluðum okkur að ná í heimavallarréttinn sem skiptir miklu máli fyrir okkur en aftur á móti er það þannig að við elskum að spila í svona stemningu og í Eyjum er alvöru úrslitakeppnisfýlingur og við erum mjög spenntir að keyra allt í botn þar.“ „Okkur finnst gaman að spila þarna og ÍBV er með frábært lið og eins og ég segi aftur að þá er miklu skemmtilegra að spila í húsi þar sem er fullt af fólki og læti og Vestmanneyingar kunna það. Svo verður geggjað að bara fara í úrslitakeppni og spila fyrir framan okkar fólk. Við erum svona stuðlið og viljum læti. Við verðum tibúnir í úrslitakeppni, nú er bara restart á allt og allt getur gerst og allt eða ekkert leikir sem verður skemmtilegt“, sagði Andri að lokum. „Alvöru handboltaleikur fyrir fullorðna menn“ „Þetta var alvöru handboltaleikur fyrir fullorðna menn, það er alveg ljóst“, sagði Daniel Birkelund stuttu eftir að leik Þórs og KA lauk með hádramatísku jafntefli í lokaumferð Olís deildar karla en hart var tekist á í leiknum eins og við var að búast. „Þetta var rosalega magnþrungið, rosalega erfitt en rosalega gaman að vera hluti af þessu og fyrir alla sem komu nálægt leiknum. Allt gat gerst en á endanum fannst mér jafntefli vera sanngjarnt. Úr því sem komið var var ánægður að fá eitt stig.“ Þór tryggði veru sína í efstu deild með sigri gegn Aftureldingu á útivelli í síðustu umferð en gátu með sigri og hagstæðum úrslitum í dag komist í úrslitakeppnina en allt kom fyrir ekki. „Örlítið vonsvikinn en ég vissi stöðuna í leiknum hjá HK í lokin og vissi því að við vorum ekki að spila upp á að komast í úrslitakeppnina lengur en ef við hefðum enn haft möguleika á því undir lokin hefðum við að sjálfsögðu tekið stærri áhættur og virkilega reynt að sækja sigurinn en við fengum ekki þá hjálp sem við þurftum og þá snérist þetta um að klára þennan leik á sem besta mögulegan hátt og reyna að fá eitthvað úr honum og eitt stig var alveg sanngjarnt.“ „Varðandi úrslitakeppnina, þá höfum við ekki verið í þeirri stöðu að hugsa um hana allt tímabilið, en við klárum þetta sterkt og stór hluti tímabilsins okkar fór í að reyna tryggja veru okkur í deildinni og ég er mjög ánægður að við gátum gert það sjálfir á mánudaginn en ekki þurft að treysta á neina hjálp frá öðrum og dagurinn í dag var bara bónus og í draumaheimi hefðum við virkilega viljað komast í úrslitakeppnina og reynt að stríða Val svolítið en ég finn ekki fyrir neinum svakalegum vonbrigðum þar sem við höfum ekki verið í stöðu til ða hugsa um úrslitakeppnina allt tímabilið.“ Þórsarar misstu þónokkra jafna leiki niður í jafntefli og töp á fyrri hluta tímabilsins en snéru taflinu við í seinni hlutanum og segist Daniel vera ánægður með framþróunina á tímabilinu. „Ég held við höfum lært margt, við erum á þeim stað að við erum að reyna að byggja eitthvað upp og móta okkur stefnu og markmið hérna. Ég sagði strax frá upphafi að eitt af mínum markmiðum sem þjálfari væri að við myndum bæta okkur í gegnum tímabilið og yrðum á okkar besta stað þegar tímabilið væri að klárast og ég held að það sé óhætt að segja að við höfum gert það. Ef við horfum bara á tölurnar þá tókum við sjö stig í fimmtán leikjum fyrir áramót en nú höfum við tekið sjö stig í sjö leikjum eftir áramót. Eins og þú sagðir, fyrir áramót þá fannst okkur við vera mjög nálægt í leikjunum og vorum að spila ágætlega en tókst ekki að klára leikina en við höfum tekið nokkur skref í rétta átt, bæði með því að vinna Aftureldingu úti á mánudaginn og líka með því að vinna Selfoss úti sem var mjög sterkt og jafnteflið í dag.“ „Ef þú horfir á leikinn í dag sýnir það alvöru karakter hjá strákunum, við vorum komnir svolítið langt niður og nokkrir leikmenn meiddir og rautt spjald og margt að gerast og það var mjög sterkt í dag að leyfa leiknum ekki að fara frá okkur og við erum mjög ánægðir með það“, sagði Daniel að endingu. Olís-deild karla KA Þór Akureyri