Handbolti

Orri fagnaði dramatískum sigri og fer til Pól­lands

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Orri skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum í sigri Sporting. 
Orri skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum í sigri Sporting.  Andrzej Iwanczuk/NurPhoto via Getty Images

Orri Freyr Þorkelsson fagnaði 30-29 sigri með liði Porto gegn Dinamo Búkarest í lokaumferð deildarkeppni Meistaradeildarinnar í handbolta.

Orri átti ágætis leik og skoraði þrjú mörk en fékk fá færi undir lokin. Þá stóð staðan jöfn og Costa bræðurnir, Francisco og Martim, tóku yfir leikinn.

Þeir tveir voru markahæstir og sáu til þess, ásamt Salvador Salvador, að Sporting slapp með sigurinn.

Það breytti þó ekki miklu því Sporting var með 6. sætið tryggt fyrir leik og gat ekki endað ofar.

Sporting er næst á leið til Póllands og mætir Wisla Plock í tveggja leikja umspilseinvígi um sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×