Handbolti

Teitur og Elliði unnu Íslendingaslaginn

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Línumaðurinn Elliði Snær Viðarsson skoraði eitt mark í sigri Gummersbach.
Línumaðurinn Elliði Snær Viðarsson skoraði eitt mark í sigri Gummersbach.

Gummersbach sótti öruggan 24-31 sigur af útivelli gegn Melsungen í miklum Íslendingaslag í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar hjá Gummersbach mættu vel gíraðir til leiks í kvöld og voru komnir með fimm marka forystu snemma.

Melsungen tókst að ráða sínum ráðum í hálfleik og jafna leikinn í þeim seinni, en Gummersbach sigldi síðan aftur örugglega fram úr.

Teitur Örn Einarsson skoraði þrjú mörk fyrir Gummersbach og Elliði Snær Viðarsson skoraði eitt mark af línunni.

Í liði Melsungen skoruðu Arnar Freyr Arnarsson og Reynir Þór Stefánsson sitt hvort markið.

Með sigrinum komst Gummersbach upp í 5. sæti deildarinnar, Evrópudeildarsætið sem Kiel missti þarna frá sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×