Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Kjartan Kjartansson skrifar 16. mars 2026 08:33 Orkuverið í Linköping er á meðal fyrirtækja í Svíþjóð sem rannsakaði leiðir til kolefnisföngunar. Nú hafa þau áform verið lögð á ís í bili. Vísir/Getty Hætt hefur verið við eða hlé gert á rúmum helmingi af stærstu kolefnisföngunarverkefnum sem áformuð voru í Svíþjóð. Stefna sænskra stjórnvalda um kolefnishlutleysi á næstu tuttugu árum byggir að hluta til á að kolefni verði fangað í auknum mæli.
Úttekt sænska ríkisútvarpsins leiðir í ljós að ellefu af tuttugu kolefnisföngunarverkefnum sem áform voru um þar í landi hafi ýmist verið stöðvuð eða þau sett á ís. Sem dæmi er nefnt raforkuver Linköping-borgar sem er einn stærsti losandi gróðurhúsalofttegunda sem valda loftslagsbreytingum í Svíþjóð. Þar hefur hlé verið gert á kolefnisföngunarverkefni sem var í þróun í mörg ár. „Við erum ekki á þeim stað þar sem við tökum núna ákvarðanir um fjárfestingar þar sem allt er gull og grænir skógar eftir þessa greiningu,“ segir Charlotte Billgren, yfirmaður sjálfbærni hjá Tekniska Verken sem rekur orkuverið. Loftslagssérfræðingur við háskólann í Linköping segir sænska ríkisfjölmiðlinum að þrátt fyrir að Svíþjóð stefni að kolefnishlutleysi fyrir árið 2045 þá hafi stjórnmálin ekki sent rétt skilaboð til iðnaðarins til þess að koma kolefnisfönguninni á koppinn. Kostnaðurinn er sagður of hár, flutningur sé erfiður og óvissa ríki um reglur Evrópusambandsins um viðskipti með kolefniseiningar. Fyrir fyrirtæki eins og orkuverið í Linköping er það of orkufrekt að reyna að framleiða svonefnt rafeldsneyti úr fönguðu kolefni. Of miklar vonir miðað við núverandi stefnu Ætli Svíar sér að ná kolefnishlutleysi á næstu tuttugu árum þurfa þeir að fanga og farga milljónum tonna af koltvísýringi á hverju ári. Loftslagsmarkmið Evrópusambandsins fyrir 2050 gerir einnig ráð fyrir að allt að hálfur milljarður tonna af koltvísýringi verðu bundinn. „Fólk bindur gríðarlega miklar vonir við þessa tækni. Sú von er algerlega óraunsæ við núverandi stefnu. Ef þetta á að verða að veruleika verður að þróa stefnuna verulega,“ segir Mathias Fridahl, loftslagsvísindamaður við Háskólann í Linköping. Kolefnisföngun er nauðsynlegur hluti af tilraunum manna til þess að koma í veg fyrir enn frekari hlýnun loftslags á jörðinni, sérstaklega í iðnaði þar sem erfitt er að koma í veg fyrir losun kolefnis. Vegna þess að koltvísýringur safnast upp í lofthjúpi jarðar í fleiri aldir og jafnvel árþúsund þurfa menn einnig að reiða sig á kolefnisföngun og förgun ef skotið verður vel yfir markið í losun og hlýnun fer umfram þau mörk sem menn hafa ákveðið að þeir treysti sér að lifa með.
Loftslagsmál Tækni Svíþjóð Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira