Bayern þarf að sækja um útivistarleyfi fyrir markmanninn Ágúst Orri Arnarson skrifar 16. mars 2026 15:02 Leonard Prescott gæti þreytt frumraun sína fyrir Bayern á miðvikudagskvöld, ef hann fær leyfi. bayern Hinn sextán ára gamli Leonard Prescott gæti tekið stórt skref í vikunni, upp úr unglingaliði Bayern Munchen og beint inn í byrjunarliðið í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar gegn Atalanta.
Bayern er að ganga í gegnum mikla meiðslakrísu hjá markmönnum liðsins. Aðalmarkmaðurinn Manuel Neuer er að glíma við meiðsli og varaskeifan Jonas Urbig fékk höfuðhögg og heilahristing í fyrri leiknum gegn Atalanta. Þriðji markmaðurinn Sven Ulreich spilaði vel um helgina í 1-1 jafntefli gegn Bayer Leverkusen, en athygli vakti að undir lok leiks gat hann ekki tekið markspyrnu sjálfur. Hann hafði tognað í læri og verður frá næstu sex vikurnar. Sá fjórði í goggunarröðinni, Leon Klanac sem spilar með u18 ára liðinu, er líka meiddur. Bayern mun því að öllum líkindum þurfa að kalla á krafta Leonards Prescott, sem spilar vanalega með u16 ára liði Bayern. Prescott þykir mjög efnilegur markmaður og var á bekknum í leiknum gegn Leverkusen um helgina. Hann hefur áður æft með aðalliðinu en aldrei spilað leik, hvað þá á stærsta sviði fótboltans í Meistaradeild Evrópu. Þýski miðillinn Bild vekur athygli á því að ef Prescott spilar Atalanta á miðvikudag mun Bayern þurfa að sækja um útivistarleyfi fyrir hann. Reglurnar í Þýskalandi eru strangar og tæknilega séð má enginn undir átján ára aldri vera úti eftir klukkan átta á kvöldin. Undanþágur eru þó veittar, eins og þegar Lamine Yamal og félagar í Barcelona mættu Bayern. Og þó sextán ára strákur verði í markinu geta stuðningsmenn Bayern andað rólega því liðið er með 6-1 forystu eftir fyrri leikinn gegn Atalanta. Seinni leikurinn fer fram á miðvikudagskvöld.
Þýski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Íslenski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Fleiri fréttir Íslendingalið Brann hlaut þungan skell Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Slær Aron markametið í kvöld? McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjá meira