Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Samúel Karl Ólason skrifar 17. mars 2026 10:50 Leitað i rústum í gamalli bandarískri herstöð sem ku hafa verið breytt í meðferðarmiðstöð fyrir fíkla eftir loftárás Pakistana í gærkvöldi. AP/Siddiqullah Alizai Ráðamenn í Afganistan segja að rúmlega fjögur hundruð manns hafi dáið og 250 særst í loftárás Pakistana á meðferðarmiðstöð í Kabúl. Pakistanar segja Talibana ljúga og að nákvæmar loftárásir hafi þess í stað verið gerðar á hernaðarlega mikilvæg skotmörk og skotmörk sem tengjast hryðjuverkastarfsemi.
Spennan milli Afganistan og Pakistan hefur verið mikil í marga mánuði en hefur tekið mikinn kipp á undanförnum vikum en ráðamenn í Pakistan hafa sakað Talibana um að hýsa vígamenn sem gert hafa mannskæðar árásir í Pakistan. Átök á landamærum ríkjanna hafa verið tíð og þá hafa Pakistanar gert nokkurn fjölda loftárása í Afganistan. Meðferðarmiðstöðin sem um ræðir er sögð vera fyrir fíkla þar sem þeir fá meðferð gegn fíkn. Hún var áður bandarísk herstöð og eru fíkniefnafíklar sagðir hafa fjölmennt þar eftir brottför Bandaríkjamanna. Þegar Talibanar tóku völdin breyttu þeir herstöðinni í meðferðarmiðstöð. Embættismenn úr röðum Talibana segja sjúklinga þar hafa verið um tvö þúsund talsins. Fréttamaður á vegum BBC er sagður hafa skoðað rústir sjúkrahússins og sá hann rúmlega þrjátíu lík. Einn maður sem blaðamaður Reuters ræddi við og mun hafa lifað árásirnar af hefur lýst aðstæðum sem „dómsdegi“ og segist hafa séð vini sína brenna. Maðurinn heitir Ahmad, er fimmtíu ára gamall, og starfaði sem sjálfboðaliði við öryggisgæslu í meðferðarstöðinni. Hann segist hafa verið með um 25 öðrum í íbúðarhúsi þar þegar árásirnar byrjuðu og hann hafi verið sá eini sem lifði af. Annar starfsmaður sagði marga unga skjólstæðinga búa í gámum í meðferðarstöðinni og að mjög fáir hefðu lifað árásirnar af. Attaullah Tarar, upplýsingaráðherra ríkisstjórnar Pakistan, birti myndband sem ku sýna hluta árásanna í Afganistan í gær á X. Þar segir hann að sprengingar sem hafi orðið eftir árásirnar í Kabúl sýni fram á að þar hafi skotfæri verið geymd. ✅ 17 March 2026✅ Pakistan’s Armed Forces successfully carried out precision airstrikes on the night of 16 March as a part of Operation Ghazab Lil Haq, targeting Afghan Taliban regime terrorism sponsoring military installations in Kabul and Nangarhar.✅ Technical support… pic.twitter.com/b8YJkGC0cv— Attaullah Tarar (@TararAttaullah) March 16, 2026 Í annarri færslu sakar Tarar Talibana um lygar. Árásir Pakistana hafi ekki beinst að borgaralegum skotmörkum, heldur hernaðarlegum og gegn hryðjuverkastarfsemi. Hann segir Pakistan og önnur ríki á svæðinu stafa ógn af hryðjuverkamönnum sem fái að starfa óáreittir innan Afganistan. Þessi ógn hafi aukist og að fíklar og saklaus börn séu meðal annars notuð til sjálfsmorðsárása. Hann segir að Pakistanar muni halda áfram að verja sig.
Afganistan Pakistan Hryðjuverkastarfsemi Hernaður Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Sjá meira