Þurfa á fullkomnu kvöldi að halda Sindri Sverrisson skrifar 17. mars 2026 14:45 Erling Haaland mætir eflaust í vígahug í kvöld. Getty/Juan Manuel Serrano Pep Guardiola, stjóri Manchester City, segir að allt þurfi hreinlega að ganga upp í kvöld, ekki bara hjá leikmönnum heldur líka dómurum og stuðningsmönnum, til að liðið slái Real Madrid út úr Meistaradeild Evrópu.
City er í afar erfiðum málum eftir sýninguna sem Federico Valverde bauð upp á í fyrri leiknum, þegar hann skoraði þrennu í fyrri hálfleik sem á endanum dugði Real til 3-0 sigurs. Í kvöld mætast liðin á Etihad-vellinum og þar hafa orðið ævintýralegar endurkomur, eins og þegar Guardiola stýrði City til sigurs gegn Aston Villa í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar 2022, eftir að Villa var 2-0 yfir, og þar með til Englandsmeistaratitils á kostnað Liverpool. Það hefur þó aðeins þrisvar sinnum gerst á síðustu tuttugu árum að lið vinni upp þriggja marka forskot eftir fyrri leik í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. „Þetta þarf að vera fullkominn leikur á marga, marga vegu,“ sagði Guardiola aðspurður hvort City gæti snúið einvíginu sér í vil í kvöld. „Fólkið okkar, ákvarðanir dómara… það er svo margt sem þarf að vera svo gott til þess að svona hlutir geti gerst. Við verðum að taka meiri áhættu í því sem við reynum og jafnvel þó að staðan verði ekki góð eftir fyrri hálfleik þá verðum við að halda áfram því maður veit aldrei. Maður veit aldrei,“ sagði Guardiola. Ekkert sem benti til 3-0 taps Einn af hans dyggustu þjónum, Bernardo Silva, sagði ljóst að enn gæti allt gerst. „Fyrir fjórum árum vorum við 2-0 undir á heimavelli gegn Villa, á 70. mínútu, en skoruðum þrjú mörk á tíu mínútum,“ sagði Silva. „Ég veit að þetta gæti hljómað heimskulega en þegar ég horfði aftur á fyrri leikinn þá sá ég ekki ástæðu fyrir því að við ættum að vera 3-0 undir í hálfleik. Úrslitin voru mun verri en frammistaðan að mínu mati. Auðvitað telur það ekkert í fótbolta. En það getur margt gerst í fótbolta svo við ættum ekki að vera niðurlútir. Við verðum að halda áfram og skapa þannig andrúmsloft að allir trúi því að þetta sé hægt,“ sagði Silva.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Íslenski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Fleiri fréttir Íslendingalið Brann hlaut þungan skell Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Slær Aron markametið í kvöld? McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjá meira