Tónabíó opnar á ný Freyja Þórisdóttir skrifar 18. mars 2026 23:00 Salurinn hefur tekið á sig ýmsar myndir í gegnum tíðina. Samsett mynd/Facebook Á morgun opnar hið sögufræga Tónabíó dyr sínar á ný. Í húsnæðinu, Skipholti 33, mátti finna bingóhöllina Vinabæ frá árunum 1990 og þangað til það skipti svo um eigendur árið 2022.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem þeir í Rvk Brugghús og Tónabíó birtu í færslu á Facebook-síðu sinni núna í mars. Tónabíó var fyrst opnað þann 23. apríl árið 1962. Feðgarnir í Lumex, Helgi Kristinn Eiríksson og Ingi Már Helgason, keyptu húsnæðið árið 2022 og lofuðu þá að engin áform væru um að byggja hótel eða blokk í staðinn. Heldur mætti „með réttu samstarfsaðilunum og réttum hópi einstaklinga, gera Tónabæ, Tónabíó, Vinabæ, að skemmtilegum samkomustað“. „Húsið sem reis árið 1962 fyrir tónlist og kvikmyndir, lifði lengi sem samkomustaður borgarinnar og síðar sem Vinabær, fær nú nýtt líf sem viðburðarými þar sem Reykjavík kemur saman á ný,“ segir í tilkynningu á Facebook síðu Rvk Bruggfélags Tónabíó. Það var reist af Tónlistarfélagi Reykjavíkur og þar starfaði svo Tónlistarskólinn í Reykjavík á efri hæðinni. Fyrsta kvikmyndin sem sýnd var í Tónabíói var Enginn er fullkominn (Some Like It Hot) með Marilyn Monroe, Tony Curtis og Jack Lemmon í aðalhlutverkum. Þann 28. febrúar 2022 var bingó spilað í Vinabæ í allra síðasta sinn en fyrsta bingókvöldið var haldið 26. febrúar árið 1982, að vísu ekki í Vinabæ, og því er um að ræða tæplega fjögurra áratuga starfsemi. Bingóunnendur þurfa þó ekki að óttast um of vegna þess að Helgi og Ingi útiloka alls ekki möguleikann á að seinna meir verði hægt að spila bingó í þessari miðstöð leiksins hér á landi. Um helgina verður haldin opnunarhátið í nýja Tónabíói og þar munu stíga á stokk tónlistarmenn á borð við Amor Vincit Omnia, Hipsumhaps og digital ísland.
Reykjavík Veitingastaðir Tónlist Mest lesið „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Viðskipti innlent Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Atvinnulíf Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Viðskipti innlent Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Sjá meira