Fótbolti

Blindröðun í beinni: Sígó í stúkunni og sjúkur snúningur Kane

Sindri Sverrisson skrifar
Sérfræðingarnir fengu meðal annars að meta magnaðan snúning Harry Kane.
Sérfræðingarnir fengu meðal annars að meta magnaðan snúning Harry Kane. Skjáskot/Sýn Sport

Albert Brynjar Ingason og Atli Viðar Björnsson fengu það erfiða verkefni í Meistaradeildarmörkunum í gær að raða fimm „tilþrifum“ í sæti, hverju á eftir öðru, án þess að fá að sjá þau fyrst öll í einu.

Á meðal tilþrifanna var meðal annars magnaður snúningur Harry Kane þegar hann skoraði seinna mark sitt fyrir Bayern í sigrinum á Atalanta. 

Stuðningsmenn ítalska liðsins fengu einnig sinn skerf af athygli en þeir stálust til að kveikja sér í sígarettu í stúkunni í München.

Blindröðun þeirra Atla og Alberts, úr beinni útsendingu á Sýn Sport í gærkvöld, má sjá í spilaranum hér að neðan.

Klippa: Blindröðun tilþrifa í Meistaradeild Evrópu



Fleiri fréttir

Sjá meira


×