Meðvirka fjölskyldan Berglind Guðmundsdóttir skrifar 19. mars 2026 19:03 Einfaldar myndlíkingar geta hjálpað okkur að sjá hluti á annan hátt. Þær gera flókin mál oft skýrari. Grein Jens Garðar Helgasonar, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, um ESB sem húsfélag er gott dæmi. Þó ég sé ekki sammála niðurstöðunni fékk hún mig til að hugsa. En góðar myndlíkingar gera meira en að útskýra. Þær opna líka á nýjar sýnir. Og þegar ég horfi á þetta þannig sé ég allt aðra mynd. Fyrir mér er þetta frekar eins og við á Íslandi séum stundum í meðvirkri fjölskyldu. Í meðvirkri fjölskyldu ráða ákveðin mynstur ríkjum án þess að það sé sagt upphátt. Það er eitthvað sem má ekki tala um, og þögnin verður hluti af kerfinu. Allir finna að eitthvað er ekki í lagi. Samt heldur allt áfram eins og ekkert sé. Fólk fer í hlutverk og smám saman verða allir leikarar í sama leikritinu. Það sem heldur þessu mynstri gangandi er sjaldnast illska, heldur öllu frekar ótti við breytingar. Þess vegna verða viðbrögðin oft sterk þegar einhver innan „fjölskyldunnar“ brýtur mynstrið og vogar sér að spyrja nýrra spurninga. Þá mætir það ekki bara andstöðu, heldur jafnvel reiði. En ef við stöldrum aðeins við: Hverjum gagnast þetta mynstur? Hverjum gagnast það að hlutirnir haldist óbreyttir? Og þegar við áttum okkur á því skiljum við kannski betur af hverju viðbrögðin verða svona sterk. Þessi kraftur er ekki bara til staðar inni á heimilum. Hann birtist líka í stærra samhengi. Þannig upplifi ég umræðuna um ESB á Íslandi í dag. Þegar fólk veltir því fyrir sér hvort lífskjör gætu batnað, hvort vextir gætu lækkað og hvort matvara gæti orðið ódýrari, mætir það oft tortryggni eða sterkum viðbrögðum, eins og það eitt að spyrja spurninga sé eitthvað sem má ekki gera. Að vilja breytingar þýðir ekki að manni þyki ekki vænt um „fjölskylduna“ sína. Þvert á móti. Að vilja breytingar er einmitt merki um að manni þyki vænt um hana, að vilja að hún dafni, verði sterkari og að hlutirnir geti orðið betri. Kyrrstaða tryggir ekki öryggi. Hún tryggir heldur ekki að fjölskyldunni vegni vel. Öll framþróun byrjar á því að við þorum að spyrja. Aðildarviðræður snúast um það eitt: að kanna möguleikana. En fyrst þurfum við að þora að rjúfa mynstrið. Höfundur er hjúkrunarfræðingur, í Viðreisn og telur mikilvægt að kanna nýja möguleika. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar