Formúla 1

Í tómu tjóni og leita logandi ljósi að liðs­stjóra

Valur Páll Eiríksson skrifar
Stroll (fyrir miðju) leitar liðsstjóra fyrir Aston Martin og hefur fundað með tveimur fyrrum Red Bull-starfsmönnum.
Stroll (fyrir miðju) leitar liðsstjóra fyrir Aston Martin og hefur fundað með tveimur fyrrum Red Bull-starfsmönnum. Samsett/Getty

Lið Aston Martin í Formúlu 1-kappakstrinum hefur átt í miklum vandræðum í upphafi yfirstandandi tímabils og leitar nýs liðsstjóra (e. team principal). Stjórnendur eru sagðir hafa reynt við stjóra Audi sem og fyrrum yfirmann Red Bull.

Bíll Aston Martin er sá eini með vél frá Honda og illa hefur tekist til að hanna bíl sem fellur að sögulega breyttri reglugerð. Aldrei áður hafa Formúlu 1 bílar tekið svo miklum breytingum á milli leiktíða.

Afraksturinn hjá Aston Martin hefur verið svo slæmur að bíllinn komst vart neitt út á braut á æfingum í aðdraganda tímabils og hvorugum ökuþóranna, Fernando Alonso og Lance Stroll, hefur tekist að koma í mark í fyrstu tveimur keppnunum í Melbourne og Sjanghaí.

Þeir félagar hafa líkt keyrslunni við skjálftavakt þar sem bíllinn hristist svo mikið. Alonso sagðist fyrir leiktíðina óttast taugaskaða af því að keyra bíl Aston Martin.

Bíllinn er þó ekki slæmur vegna skorts á vinnu og fjármagni. Adrian Newey, sem er talinn besti Formúlu bílahönnuður heims, var gert gylliboð sem hann gat ekki hafnað. Hann hefur unnið að hönnun bílsins og samhliða því starfað sem liðsstjóri.

Lawrence Stroll, eigandi Aston Martin-liðsins, leitar nú logandi ljósi að nýjum liðsstjóra svo Newey geti einbeitt sér alfarið að því sem hann er bestur í, hönnun bílsins.

Stroll er sagður hafa átt fund með Christian Horner, sem náði gríðargóðum árangri á áralöngum ferli sem liðsstjóri Red Bull. Horner vann sex heimsmeistaratitla með liðinu á árunum 2010 til 2023 en var sagt upp um mitt síðasta leiktíð vegna meintrar óviðeigandi hegðunar, auk samskiptaörðugleika innan liðsins og slaks árangurs.

Newey er sagður andsnúinn ráðningu Horners og ólíklegt þykir að hann taki við. Stroll hafi því næst snúið sér að öðrum Breta, Jonathan Wheatley.

Sá tók við nýju liði Audi fyrir aðeins ári síðan en er sagður heillast af verkefninu hjá Aston Martin. Þá sér í lagi því að Aston Martin er með höfuðstöðvar í heimalandi hans á meðan Audi er með starfsstöðvar í Sviss.

Wheatley gerði vel með Audi-liðið í fyrra (þegar það hét Sauber) en sú staðreynd að hann er með langtímasamning við Audi gæti gert Aston Martin erfitt fyrir, eða í það minnsta kostnaðarsamt, að lokka Wheatley yfir.

Newey er í það minnsta sagður spenntari fyrir kostinum að starfa með Wheatley heldur en Horner. Þeir Newey og Wheatley unnu saman hjá Red Bull í tvo áratugi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×