„Löngu tímabært“ að kaupaukareglur verði þær sömu og í nágrannalöndum
Stjórnarformaður Kviku telur að innleiðing á nýju regluverki um breytileg starfskjör muni að óbreyttu hafa „alvarleg áhrif“ á samkeppni um starfsfólk á fjármálamarkaði og kallar eftir því að löggjöfin sé samræmd við það sem þekkist í nágrannalöndum. Stjórnendur Kviku og Arion hafa átt í forviðræðum um margra mánaða skeið við Samkeppniseftirlitsins vegna fyrirhugaðs samruna en „of snemmt“ er að segja til um lyktir þeirra.
Tengdar fréttir
Umframfé Kviku eykst hlutfalllega langmest með nýju bankaregluverki
Með innleiðingu á fyrirhuguðu nýju evrópsku regluverki um fjármálastofnanir þá er áætlað að áhrifin verði meðal annars til þess að grunnur áhættuveginna eigna Kviku muni lækka um fjórtán prósent, margfalt meira en í samanburði við stóru bankanna. Það þýðir jafnframt að þegar regluverkið tekur gildi þá losnar um hlutfallslega umtalsvert meira umfram eigið fé hjá Kviku, sem er þá hægt að nýta til frekari útgreiðslna til hluthafa eða aukins útlánavaxtar.
Greiðslur til hluthafa Kviku munu nema um þrjátíu milljörðum eftir söluna á TM
Góður gangur í rekstri TM á síðustu fjórðungum þýðir að endanlegt kaupverð Landsbankans á tryggingafélaginu verður að líkindum yfir 32 milljarðar og mun meðal annars skila sér í talsvert meiri útgreiðslum til hluthafa Kviku en áður var talið þegar viðskiptin klárast á næstu vikum. Uppgjör Kviku banka á fjórða ársfjórðungi, sem var að mestu í takt við væntingar, sýndi áframhaldandi bata á grunnrekstrinum en stjórnendur félagsins sjá tækifæri í að auka vaxtamuninn enn frekar með bættum vaxtakjörum í útgáfum á erlendum mörkuðum.