Handbolti

Janus fær ekki að leika listir sínar í Las Vegas

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Janus Daði átti að fara til Las Vegas í sumar með liði sínu Pick Szeged en ekkert verður úr því. 
Janus Daði átti að fara til Las Vegas í sumar með liði sínu Pick Szeged en ekkert verður úr því.  vísir / vilhelm

Hætt hefur verið við sýningarmót í handbolta sem átti að fara fram í Las Vegas í Bandaríkjunum í sumar. Stjórnmálaástandið þar í landi er sögð ástæðan og unnið er að því að færa mótið eitthvert til Evrópu.

Janus Daði Smárason og félagar í ungverska liðinu Pick Szeged áttu að taka þátt í „PRO Handball USA“ mótinu í Las Vegas í sumar.

Mótið var stofnað í þeim tilgangi að vekja áhuga á handbolta í Bandaríkjunum fyrir Ólympíuleikana í Los Angeles árið 2028.

Þrjú önnur stórlið höfðu boðað komu sína: Þýskalandsmeistarar Fuchse Berlin, Danmerkurmeistarar Aalborg, og bronslið Meistaradeildarinnar, HBC Nantes frá Frakklandi.

Þýsku meistararnir frá síðasta ári áttu að mæta á mótið. 

Mótið hefur verið flautað af í Las Vegas og Bandaríkjamenn munu því ekki fá tækifæri til að sjá stjörnur á borð við Mathias Gidsel, Aymeric Minne, Sander Sagosen og Juri Knorr spila handbolta.

„Við verðum að horfast í augu við það að núverandi stjórnmálaástand skapar hættu á að við lendum í ófyrirséðum áskorunum sem geta haft neikvæð áhrif á verkefnið,“ sagði Mads H. Winther, skipuleggjandi mótsins við DR.

Það er samt ekkert sem kemur sérstaklega í veg fyrir það að mótið fari fram í Bandaríkjunum. Ólíkt til dæmis HM í fótbolta eru engin lið eða leikmenn á þessu móti sem Bandaríkin eru beinlínis í stríði við.

„Óvissa er bara slæm þegar eitthvað þarf að undirbúa með löngum fyrirvara. Allt sem gefur til kynna óvissu veldur áhyggjum,“ sagði Winther en hann vinnur nú að því að finna nýjan stað fyrir mótið. Líklegast verður það í Þýskalandi, Danmörku, Frakklandi eða Ungverjalandi.

Þess má svo geta að Janus Daði er sterklega orðaður við skipti til Barcelona í sumar og hefði því kannski ekkert farið til Las Vegas hvort sem er. Ekkert hefur þó verið staðfest í þeim efnum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×