Bergrós endaði númer sautján í heiminum: „Þýðir mikið fyrir mig“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. mars 2026 09:03 Bergrós Björnsdóttir hefur sýnt það og sannað að hún kemur inn í tímabilið í frábæru formi. @bergrosbjornsdottir Bergrós Björnsdóttir náði bestum árangri Íslendinga í CrossFit Open í ár en fyrsta hluta undankeppni heimsleikanna í CrossFit er nú lokið.
Bergrós var meðal efstu kvenna allar vikurnar og endaði í sautjánda sæti. Hún varð fimmta í fyrstu viku, í 34. sæti í annarri viku og loks í 97. sæti í þriðju viku. Bergrós kláraði því meðal hundrað bestu í öllum vikunum þremur en aðeins slakari þriðja vika þýddi að hún lækkaði um ellefu sæti. Árangurinn er engu að síður stórglæsilegur og boðar gott fyrir komandi tímabil. Bergrós er ekki bara sautjánda í heiminum heldur einnig tólfta meðal evrópsku stelpnanna. Þetta er líka þriðja árið sem Bergrós tekur mikið stökk á listanum. Hún hækkar sig um sextán sæti frá því í fyrra, þegar hún endaði í 33. sæti, og árið þar á undan var hún í 160. sæti. Næstar af íslensku stelpunum voru Steinunn Anna Svansdóttir (172. sæti), Guðbjörg Valdimarsdóttir (195. sæti) og Elín Birna Hallgrímsdóttir (225. sæti). Efsti íslenski karlinn var Bjarni Leifs Kjartansson sem náði 29. sæti en Rökkvi Hrafn Guðnason endaði í 79. sæti. Bjarni Leifs vann fyrstu vikuna, varð í 154. sæti í annarri vikunni og svo í 60. sæti í þriðju og síðustu vikunni. Rökkvi varð annar í fyrstu vikunni, í 393. sæti í annarri viku og loks í 92. sæti í þriðju viku. View this post on Instagram A post shared by Bergrós Björnsdóttir (@bergrosbjornsdottir) Bergrós var mjög sátt þegar hún gerði upp árangur sinn á samfélagsmiðlum. „Andrúmsloftið hjá CrossFit Reykjavik var magnað og ég hafði ótrúlega gaman af því að keppa með hópnum. Þetta var svo skemmtileg leið til að hefja tímabilið,“ skrifaði Bergrós. „Að lenda í sautjánda sæti á heimsvísu þýðir mikið fyrir mig. Það sýnir að öll vinnan sem ég hef lagt á mig er að skila árangri og gefur mér sjálfstraust fyrir framhaldið. Ég er stolt af því hversu langt ég er komin en er alltaf hungruð í meira,“ skrifaði Bergrós. „Ég er spennt fyrir því að halda áfram að byggja mig upp og sjá hvað þetta ár ber í skauti sér,“ skrifaði Bergrós. View this post on Instagram A post shared by CrossfitCoverage (@coveringcf)
CrossFit Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti Breiðablik - Afturelding | Hvort liðið endar sem bikarmeistari? Íslenski boltinn Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Enski boltinn Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Enski boltinn „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fótbolti Fleiri fréttir Lagði upp á leið í undanúrslit Fram á toppinn og flautumark á Selfossi FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Haukur leiddi endurkomu Löwen Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Breiðablik - Afturelding | Hvort liðið endar sem bikarmeistari? Markasúpa í Noregi Hrútarnir frá Hollywood eiga að fara alla leið Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Nýja brautin í Madrid toppi Mónakó Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Öll pressan er á Ólafi Inga „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Besta frjálsíþróttafólk heims mætist í nýju móti Yfir hundrað þúsund áhorfendur mættu á NFL-leik í Ástralíu ÍBV samdi við bandarískan hermann Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Dagskráin í dag: Golf, Formúla og Hollywood Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Sjá meira