„Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Valur Páll Eiríksson skrifar 21. mars 2026 11:50 Óskar Hrafn segir synd að Arnór Ingvi sé ekki með en endurheimtir þó Luke Rae eftir meiðsli. Hann býst við hörku áskorun er KR mætir Fylki. Vísir/Anton Brink Óskar Hrafn Þorvaldsson vonast til að hans menn í liði KR byggi ofan á afgerandi 4-0 sigur á Stjörnunni í undanúrslitum Lengjubikars karla síðustu helgi er liðið mætir Fylki í úrslitum í dag. „
Við KR-ingar erum mjög vel stemmdir. Við erum þakklátir að fá leik sem þennan þegar stutt er í mót. Það er munur á úrslitaleik í Lengjubikar og æfingaleikjum. Það er mikil tilhlökkun hjá okkur,“ segir Óskar Hrafn í samtali við Sýn. KR og Fylkir mætast klukkan 14:00 og verður leikur sýndur beint á Sýn Sport Ísland. KR lék við hvurn sinn fingur gegn Stjörnunni í Garðabæ síðustu helgi og vann 4-0 sigur til að tryggja sitt sæti í úrslitum. Sá sigur var síst of stór. Óskar segir stíganda hjá sínu liði og vonast til að taka áfram skref upp á við. „Það er auðvitað markmiðið. Það er að byggja ofan á þessa frammistöðu sem við höfum náð í undanförnum leikjum, bæði á móti Njarðvík og Stjörnunni. Mér finnst góður gangur í hópnum og liðinu. Ekki bara innan vallar heldur líka utan vallar,“ „Æfingaferðin sem við fórum í var vel nýtt bæði æfingalega séð og að finna út hvað menn vilja vera og hvað þeir þurfa að gera til að ná því. Þessi leikur í dag er bara einn angi af því að bæta sig sem lið.“ segir Óskar. Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, greindi leik KR við Stjörnuna og segist ætla að forðast mistök sem Garðbæingar gerðu þar. Fylkir mæti með annað leikplan og byggi á góðum varnarleik gegn orkumiklu pressuliði KR. Óskar Hrafn býst við áskorun í dag sem er frábrugðin þeirri á laugardaginn var. „Við erum alveg meðvitaðir um það að það hentar Fylkismönnum ágætlega að liggja til baka og sækja hratt. Þeir eru með fljóta menn fram á við,“ „Það er það sem við búumst við og það sem við þurfum að vera betri í heldur en við vorum í mörgum leikjum í fyrra. Varnarleikurinn okkar byrjar ekki og snýst ekkert endilega um hvernig hann er neðst á vellinum. Heldur meira um það hvað við gerum þegar við töpum boltanum, hversu öflugir við erum að loka á menn og vinna hann til baka,“ „Ég lít fyrst og fremst á þetta sem áskorun. Ef við erum ekki á tánum og tilbúnir að verjast framarlega á vellinum geta Fylkismenn sannarlega sært okkur,“ segir Óskar. Arnór Ingvi Traustason fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt gegn Stjörnunni. Hann missir því af leik dagsins. Það er högg fyrir Vesturbæinga. „Auðvitað er alltaf slæmt að hann sé ekki með. En ég held það hefði verið dýrmætast fyrir hann að fá mínútur í lappirnar. Hann þurfti að bíða þar til 7. Febrúar að byrja að spila. Það er kannski helst það,“ „Við erum svo sem ágætlega mannaðir og þegar einn dettur út kemur annar inn. Ég lít frekar á mínúturnar sem hann hefði getað fengið til að ná enn betri takti með liðinu,“ segir Óskar Hrafn. Þónokkrir leikmenn KR sátu í stúkunni og horfðu á leikinn við Stjörnuna. Einn snýr aftur. „Luke Rae er klár aftur. En það er eitthvað aðeins í aðra leikmenn,“ segir Óskar. Áfram eru þeir Michael Akoto, Orri Hrafn Kjartansson, Birgir Steinn Styrmisson, Alexander Helgi Sigurðarson, Galdur Guðmundsson og Hjalti Sigurðsson á meiðslalistanum. Ertu bjartsýnn að þú haldir á bikar í lok dags? „Ég er bjartsýnismaður. Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum. En það veltur auðvitað á því að menn mæti almennilega gíraðir, með hátt orkustig. Ef það er til staðar þá erum við í fínum málum,“ segir Óskar. Leikur Fylkis og KR hefst klukkan 14:00. Hann verður sýndur beint á Sýn Sport Ísland og lýst beint hér á Vísi. Seinni hálfleik leiksins verður þá fylgt eftir ásamt fjölda leikja víða um Evrópu í Doc Zone á Sýn Sport, sem hefst klukkan 14:40.
KR Fylkir Lengjubikar karla Lengjudeild karla Besta deild karla Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Fleiri fréttir Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Sjá meira