Robert Mueller er látinn Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 21. mars 2026 18:00 Mueller starfaði sem sérstakur saksóknari hjá dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna og leiddi hina svokölluðu Rússarannsókn. AP Robert S. Mueller, sem stýrði bandarísku alríkislögreglunni í tólf ár og starfaði sem sérstakur saksóknari hjá dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna, er látinn. Hann varð 81 árs.
New York Times greinir frá andláti Mueller og gerir ævi hans og störfum ítarleg skil. Hann lést í gær en dánarorsök hefur enn ekki verið tilgreind. Mueller hóf störf sem forstjóri alríkislögreglunnar viku fyrir árásirnar á tvíburaturnana 11. september 2001. Hann stóð fyrir miklum skipulagsbreytingum innan FBI sem sneru að því að nútímavæða stofnunina. Mueller gegndi embættinu í tólf ár. Hélt sig til hlés Mueller verður þó best minnst vegna starfa hans sem sérstakur saksóknari hjá dómsmálaráðuneytinu. Hann var skipaður í embættið í maí 2017 í tengslum við hina svokölluðu Rússarannsókn, sem sneri að afskiptum Rússa af kosningabaráttu Donalds Trump í forsetakosningunum 2016 og herferð þeirra til að hafa áhrif á kosningarnar. Athygli vakti að meðan á rannsókninni stóð lét Mueller lítið fyrir sér fara, blés ekki til blaðamannafunda og kom hvergi fram opinberlega. Hann mætti miklu mótlæti frá Trump og stuðningsmönnum hans sem líktu rannsókninni við nornaveiðar en Trump fagnaði andláti hans á samfélagsmiðlum. „Robert Mueller er látinn. Gott, ég gleðst yfir því. [...]. Hann getur þá ekki sært saklaust fólk lengur,“ sagði Bandaríkjaforseti í samfélagsmiðlafærslu. Rússarannsókn Mueller lauk í apríl 2019 þegar hann sendi frá sér tæplega 500 blaðsíðna skýrslu um samskipti kosningamaskínu Trump og Rússlands. Samkvæmt henni fékkst ekki ráðið að um ólögmætt samsæri hefði verið að ræða. Þá kom fram að Trump hefði ítrekað beitt sér fyrir því að rannsóknin yrði stöðvuð og gert tilraunir til að skaða hana. Þá var ekki tekin afstaða til þess hvort Donald Trump hefði í kosningabaráttunni brotið lög, að hluta til vegna þeirrar stefnu ráðuneytisins að banna ákærur á hendur sitjandi forseta. Eftirfarandi kom þó fram í skýrslunni um sök Trump: „Ef við værum alveg sannfærð, eftir ítarlega rannsókn, um að forsetinn hefði bersýnilega ekki brotið nein lög, myndum við lýsa því yfir. Út frá þeim staðreyndum sem liggja fyrir og þeim lögum sem gilda er sú niðurstaða ótæk.“ Áður en Mueller gekk til liðs við FBI lauk hann háskólaprófi frá Princeton-háskóla og meistaragráðu í alþjóðasamskiptum frá New York-háskóla. Hann var landgönguliði í þrjú ár í Víetnamstríðinu og hlaut viðurkenningar fyrir. Eftir ár hans í Bandaríkjaher lauk hann lögfræðiprófi frá háskólanum í Virginíu. Hann starfaði sem héraðs- og ríkissaksóknari og hjá háttsettum lögmannastofum. Fréttin hefur verið uppfærð.
Andlát Bandaríkin Donald Trump Rússarannsóknin Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Fleiri fréttir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Sjá meira