HK flaug upp í Olís-deildina Sindri Sverrisson skrifar 22. mars 2026 19:29 HK fagnaði deildarmeistaratitlinum, og sæti í Olís-deildinni, vel í kvöld. VÍSIR/VILHELM HK-konur vissu fyrir leik sinn við Fjölni í Grafarvogi í kvöld að sigur kæmi þeim upp í Olís-deildina í handbolta. Þær létu tilefnið ekki trufla sig, unnu stórsigur og eru því komnar í deild þeirra bestu.
HK hefur spilað síðustu þrjár leiktíðir í Grill 66-deildinni, eftir fallið úr Olís-deildinni 2023, og varð að vinna Fjölni í lokaumferðinni í kvöld til að tryggja sér 1. sæti og sleppa við umspil. Staðan í hálfleik í Kórnum í kvöld var 14-12 fyrir HK en heimakonur stungu svo af í seinni hálfleiknum og höfðu náð átta marka forskoti þegar korter var eftir. Þær bættu svo enn frekar í og tryggðu sér deildarmeistaratitilinn með sannfærandi hætti. Lokatölur 31-20. Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir var markahæst hjá HK með sex mörk og þær Tinna Ósk Gunnarsdóttir og Inga Fanney Hauksdóttir skoruðu fjögur mörk hvor, en alls skoruðu tólf leikmenn fyrir liðið í kvöld. Gróttukonur unnu á sama tíma risasigur gegn varaliði Fram, 42-15, en þurftu að treysta á tap hjá HK til að ná 1. sætinu. Grótta endaði með 36 stig, tveimur stigum á eftir HK, og þarf nú að fara í umspil með Víkingi, FH og svo Stjörnunni sem endaði í næstneðsta sæti Olís-deildarinnar. Eitt þessara fjögurra liða leikur í Olís-deildinni næsta vetur. Tíu marka sigur Fram fyrir úrslitakeppnina Í Olís-deildinni vann Fram tíu marka sigur gegn KA/Þór, 35-25, í lokaleik liðanna í deildarkeppninni. Úrslitin breyta engu um það að Fram endar í 5. sæti og KA/Þór í 6. sæti, og mun Fram spila við ÍR í fyrstu umferð úrslitakeppninnar en KA/Þór við Hauka.
HK Olís-deild kvenna Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira