Gervigreindarmyndskeiðum af barnaníði fjölgar gífurlega Hólmfríður Gísladóttir skrifar 24. mars 2026 07:50 Níðingarnir gleðjast yfir framþróun gervigreindarinnar. Getty Eftirlitsaðilinn Internet Watch Foundation segir myndum og myndskeiðum af kynferðisbrotum gegn börnum sem framleidd eru með aðstoð gervigreindar hafa fjölgað um fjórtán prósent í fyrra. Gervigreindin virðist vera að gera mönnum kleift að framleiða grófara efni.
Samkvæmt IWF fundust 8.029 myndir og myndskeið á netinu í fyrra sem sýndu afar raunverulegt barnaníðsefni, framleitt með gervigreind. Veruleg aukning var á myndskeiðum en af 3,443 féllu 65 prósent í flokk A, grófasta efnið samkvæmt skilgreiningu yfirvalda á Bretlandseyjum. Sambærilegt hlutfall fyrir myndskeið sem sýna barnaníð framleitt með „hefðbundnum“ hætti, það er að segja án notkunar gervigreindar, var 43 prósent. Gervigreindin er þannig að greiða fyrir aukningu í efni sem sýnir afar grófa misnotkun á börnum. „Tækniframþróun á aldrei að verða á kostnað öryggi og velferðar barna,“ hefur Guardian eftir Kerry Smith, framkvæmdastjóra IWF. „Á sama tíma og gervigreindin getur boðið upp á margt jákvætt þá er hrylliegt að hugsa til þess að möguleikar hennar séu notaðar til að rústa lífi barns. Þetta efni er hættulegt.“ Sérfræðingar IWF segja að á djúpvefnum hafi menn sem níðast á börnum tekið framþróun gervigreindarinnar fagnandi. Þar eigi þeir samræður um hversu raunverulegt efnið sé að verða og að nú sé að verða hægt að bæta við hljóði og búa til efni með því að notast við myndir af börnum sem viðkomandi þekkja. Samkvæmt skoðanakönnun sem IWF birti vilja átta af tíu Bretum að stjórnvöld innleiði lög sem skylda tæknifyrirtækin til að setja öryggi í forgrunninn þegar kemur að þróun gervigreindar.
Bretland Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Gervigreind Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Fleiri fréttir Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Sjá meira