Að venja barn af bleyju Elín Erna Steinarsdóttir skrifar 24. mars 2026 13:02 Ef þú ert verðandi foreldri eða átt ungbarn þá getur þú sparað þér mikinn kostnað vegna bleyjukaupa. Þú getur líka sparað þér og barninu þínu mikil leiðindi og erfiðleika með því að setja barnið þitt á kopp áður en það er búið að læra og venjast að gera öll sín stykki í bleyjuna. Aðferðin er einföld og felst í því að venja barnið á kopp strax þegar barnið getur haldið höfði og helst ekki seinna en þegar það getur setið sjálft. Það er lítið mál að hafa koppinn á skiptiborðinu og halda undir handarkrika barnsins og spjalla við það smá stund til að venja barnið á að koppurinn er hluti af lífinu. Mikilvægt er að barnið sé sett á koppinn strax þegar það vaknar af blundi. Þá mun það pissa í koppinn og undirmeðvitundin tengir fljótt saman að pissa þegar sest er á koppinn. Með því að barnið pissar í koppinn eftir blund þá er það oftast með þurra bleyju á sér og venst því. Þegar barnið fer að borða fasta fæðu og hægðir fara að formast verða þær oft reglulegri og sjá má merki um að barnið sé að kúka. Þá er hægt að setja það á koppinn sem það er orðið vant að nota og fljótt finnur barnið að það er auðveldara að kúka í koppinn þannig að oftast gengur þetta vel. Ég hef heyrt raddir um að ekki sé hollt fyrir svo ung börn að sitja á koppi, en málið er að barnið þarf aldrei að sitja á koppnum nema smá stund því það mun pissa fljótt eftir blund og ef það pissar ekki fljótlega er það væntanlega búið að pissa. Aðrir segja að geta barns til að stjórna þvaglátum náist ekki fyrr en um tveggja ára aldur og ekki eigi að gera kröfu til barns að gera meira en það hefur þroska til. Svar mitt við því er að aldrei er gerð nein krafa á barnið heldur, þvert á móti. Það lærir að stjórna þvaglátum án þess að vita af því, það mun aldrei mótmæla koppnum, aldrei upplifa þreytta og pirraða foreldra sem eru að reyna að selja barninu sínu að allt í einu eigi það að breyta venjum sínum og setjast á óþægilegan kopp eða klósettsetu. Mörg börn mótmæla því harðlega og eiga erfitt með að slaka á og gera stykkin sín við nýjar aðstæður. Betra er að sleppa við það og eyða dýrmætum tíma með barninu við uppbyggilegri hluti, s.s. lestur, spjall, spil og aðra skemmtilega leiki. Gangi þér og barninu þínu vel. Höfundur er leikskólastjóri á eftirlaunum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Sjá meira