Gæti orðið einvígi á milli Njarðvíkur og Keflavíkur í fyrstu umferð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. mars 2026 11:02 Landsliðskonan Sara Rún Hinriksdóttir og félagar hennar í Keflavík hafa mætt Njarðvík í úrslitakeppninni undanfarin þrjú tímabil Vísir/Diego Lokaumferð deildarkeppni Bónusdeildar kvenna í körfubolta fer fram í kvöld og stórleikur kvöldsins er án efa óopinber úrslitaleikur á milli Hauka og KR um deildarmeistaratitilinn. Það er líka barist um önnur sæti.
Haukar og KR spila um deildarmeistaratitilinn og heimavallarrétt út alla úrslitakeppnina. Haukarnir eru á heimavelli og geta ekki endað neðar í öðru sæti en tap hjá KR-konum gæti þýtt að liðið dytti niður í þriðja sætið. Njarðvíkurkonur hafa verið mikið á toppnum í vetur en misstu af deildarmeistaratitlinum með tapi á móti KR í síðustu umferð. Njarðvíkurkonur geta enn náð öðru sætinu í deildinni en þær gætu líka lent í því að lenda á móti nágrönnum sínum í Keflavik í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar. Keflavíkurkonur voru í neðri hlutanum. Það eru fleiri en leið að því að fá Reykjanesbæjarslag í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Njarðvíkurkonur enda í annaðhvort öðru eða þriðja sæti og mæta þá liðinu í sjötta eða sjöunda sæti. Það eru einmitt sætin sem Keflavíkurliðið getur endað í. Stjörnukonur geta einnig náð sjötta og sjöunda sætinu og Tindastólsliðið á einnig möguleika á sjöunda sætinu. Njarðvík verður í öðru sætinu ef liðið vinnur Val á sama tíma og Haukar vinna KR. Til að mæta Keflavik þyrftu nágranner þeirra að enda í sjöunda sæti. Keflavíkurkonur enda þar ef þær tapa lokaleik sínum á móti Stjörnunni. Njarðvík verður í þriðja sætinu ef liðið tapar fyrir Val eða að þær vinna Val en KR-konur vinna Hauka. Þá þyrftu Keflavík að enda í sjötta sæti til að við fengjum Reykjanesbæjarslag og þar enda þær með því að vinna Stjörnuna í lokaumferðinni. Njarðvík og Keflavík hafa fimm sinnum mæst í úrslitakeppni kvenna en aldrei í átta liða úrslitum. Félögin hafa mæst þrisvar í undanúrslitum (2003, 2023 og 2025) og svo tvisvar í lokaúrslitum (2011 og 2024). Lendi liðið á móti hvort öðru í komandi úrslitakeppni verður það fjórða árið í röð sem Reykjanesbæjarliðin mætast í úrslitakeppni en karlalið félagsins hafa aftur á móti ekki mæst í úrslitakeppninni í sextán ár (Undanúrslit 2010). Hér fyrir ofan má sjá í hvaða sætum liðin geta endað eftir leiki kvöldsins. Allir fjórir leikir kvöldsins verða í beinni útsendingu á sportstöðvunum í kvöld og Skiptiborðið mun fylgjast með öllum leikjunum í einu. Eftir leikina mun Bónus Körfuboltakvöld kvenna gera allt upp.
Bónus-deild kvenna Keflavík ÍF UMF Njarðvík Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Sara Björk komin heim Sport Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Körfubolti Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Fleiri fréttir Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Sjá meira