Fimmtán ára stúlka drap tvo fyrir Foxtrot-gengið Samúel Karl Ólason skrifar 26. mars 2026 22:06 Lögreglan í Svíþjóð telur morð stúlkunnar tengjast skipulagðri glæpastarfsemi og er hún talin hafa framið morðin fyrir Foxtrot-gengið alræmda. Getty/Nils Petter Nilsson Fimmtán ára stúlka hefur verið handtekinn í Svíþjóð en hún er grunuð um að hafa skotið tvo drengi til bana. Hún mun hafa skotið sautján ára dreng skammt frá Stokkhólmi á mánudaginn og í gær skaut hún fimmtán ára dreng í Malmö. Grunur leikur á um að hún hafi framið morðin fyrir Foxtrot-gengið alræmda.
Lögregluna grunaði strax á mánudaginn að stúlkan hefði myrt drenginn suður af Stokkhólmi en hún mun hafa komist upp í lest til Malmö áður en hún var gómuð. Auk stúlkunnar var sautján ára drengur handtekinn en hann var með henni þegar hún fannst eftir morðið í Malmö og voru þau bæði vopnuð skotvopnum. Þá er einnig búið að handtaka 35 ára mann vegna málsins. Samkvæmt heimildum sænska ríkisútvarpsins var bróðir drengsins í Malmö tengdur Rumba-glæpasamtökunum, sem eru í samkeppni við Foxtrot. Í frétt Expressen segir að Malmö sé nú eitt af höfuðvígum Foxtrot í Svíþjóð og munu margir glæpamenn í borginni hafa gengið til liðs við samtökin. Átök umsvifamikilla glæpasamtaka í Svíþjóð hafa skotið Svíum skelk í bringu á undanförnum árum en harka þessara átaka hefur verið mjög mikil. Þá hafa glæpagengin mikið notað börn til ofbeldisverka og morða þar sem notast er við hnífa, skotvopn og jafnvel sprengjur. Samhliða þessari auknu hörku hefur það einnig færst í aukana að saklaust fólk láti lífið í þessum átökum glæpamanna. Spila stóra rullu í smygli fíkniefna og skotvopna Foxtrot-gengið hefur í nokkur ár verið mjög umsvifamikið í Svíþjóð og er gjarnan bendlað við ofbeldisverk þar í landi. Samtökin eru sögð spila stóra rullu í flutningi fíkniefna til Svíþjóðar og annarra ríkja í Evrópu, auk þess sem þau eru sögð smygla skotvopnum. Samtökin hafa verið leidd af manni af írönskum uppruna sem heitir Rawa Majid. Sá er kallaður Kúrdíski refurinn og hefur stýrt Foxtrot frá Tyrklandi. Hann er nú talinn í Íran en þar átti hann að hafa verið handtekinn árið 2023. Bandaríkjamenn og Bretar héldu því fram í fyrra að hann hefði notað Foxtrot-samtökin til að gera árásir á gyðinga í Svíþjóð fyrir hönd klerkastjórnarinnar í Íran. Majid var sagður hafa átt í beinu samstarfi við leyniþjónustur í Íran.
Svíþjóð Erlend sakamál Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fleiri fréttir Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Sjá meira