Fékk dánaraðstoð í gær eftir harða baráttu við föður sinn Hólmfríður Gísladóttir skrifar 27. mars 2026 08:32 Fulltrúar ýmissa trúarhópa söfnuðust saman fyrir utan sjúkrahúsið þar sem Castillo fékk aðstoð við að deyja í gær. Getty/Albert Llop Ung kona á Spáni fékk aðstoð við að deyja í gær, eftir langa baráttu fyrir dómstólum. Konan, Noelia Castillo, 25 ára, hafði fengið umsókn sína um dánaraðstoð samþykkta árið 2024 en málið hefur verið á bið síðan vegna andmæla föður hennar. Castillo átti erfiða barnæsku, glímdi við andlega erfiðleika eftir skilnað foreldra sinna og var oftsinnis vistuð utan heimilis. Þá var henni nauðgað af fyrrverandi kærasta sínum til fjögurra ára og skömmu síðar af þremur mönnum á næturklúbbi. Hún gerði tilraun til að fremja sjálfsvíg eftir hópnauðgunina, með því að stökkva út um glugga fjölbýlishúss, og lamaðist frá mitti og niður. Castillo sagðist hafa verið afar verkjuð og þjáð eftir það og óskaði því eftir að fá að deyja. „Ég vil fara í friði og hætta að þjást,“ sagði Castillo í samtali við spænskan miðil. Fjölskylda hennar væri á móti dánaraðstoð en velferð hennar hlyti að vera jafn mikilvæg og tilfinningar fjölskyldu hennar. Faðir Noeliu, Geronimo Castillo, höfðaði mál fyrir dómi með fulltingi íhaldssamra samtaka lögmanna og hélt því fram að andleg veikindi dóttur hans gerðu hana óhæfa til að taka svo afdrifaríka ákvörðun. Málið rataði alla leið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sem hafnaði kröfu Geronimo. Dánaraðstoð var heimiluð með lögum á Spáni árið 2021, þrátt fyrir mikla andstöðu hópa íhaldsmanna og kaþólskra. Umsækjendur um aðstoðina verða að skila inn tveimur beiðnum með fimmtán daga millibili og ræða við heilbrigðisstarfsmenn sem hafa ekki áður komið að málum viðkomandi. Ef þeir eru samþykkir þarf viðkomandi að sækja um til sérfræðinefndar, sem hefur lokavald í málinu. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Spánn Dánaraðstoð Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira
Castillo átti erfiða barnæsku, glímdi við andlega erfiðleika eftir skilnað foreldra sinna og var oftsinnis vistuð utan heimilis. Þá var henni nauðgað af fyrrverandi kærasta sínum til fjögurra ára og skömmu síðar af þremur mönnum á næturklúbbi. Hún gerði tilraun til að fremja sjálfsvíg eftir hópnauðgunina, með því að stökkva út um glugga fjölbýlishúss, og lamaðist frá mitti og niður. Castillo sagðist hafa verið afar verkjuð og þjáð eftir það og óskaði því eftir að fá að deyja. „Ég vil fara í friði og hætta að þjást,“ sagði Castillo í samtali við spænskan miðil. Fjölskylda hennar væri á móti dánaraðstoð en velferð hennar hlyti að vera jafn mikilvæg og tilfinningar fjölskyldu hennar. Faðir Noeliu, Geronimo Castillo, höfðaði mál fyrir dómi með fulltingi íhaldssamra samtaka lögmanna og hélt því fram að andleg veikindi dóttur hans gerðu hana óhæfa til að taka svo afdrifaríka ákvörðun. Málið rataði alla leið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sem hafnaði kröfu Geronimo. Dánaraðstoð var heimiluð með lögum á Spáni árið 2021, þrátt fyrir mikla andstöðu hópa íhaldsmanna og kaþólskra. Umsækjendur um aðstoðina verða að skila inn tveimur beiðnum með fimmtán daga millibili og ræða við heilbrigðisstarfsmenn sem hafa ekki áður komið að málum viðkomandi. Ef þeir eru samþykkir þarf viðkomandi að sækja um til sérfræðinefndar, sem hefur lokavald í málinu. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Spánn Dánaraðstoð Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira