Gerðir samningar sviknir af ESB Erna Bjarnadóttir skrifar 27. mars 2026 16:00 Fremur furðuleg grein birtist í gær á Vísi eftir Andrés Pétursson, fyrrverandi formann Evrópusamtakanna. Þar gerði hann að umræðuefni reynslu frænda okkar Íra af sjávarútvegsmálum innan Evrópusambandsins. Slæma reynslu svo ekki sé meira sagt. Fyrir jól tók ESB ákvörðun um mikinn niðurskurð í aflaheimildum í sameiginlegri efnahagslögsögu sambandsins vegna ofveiði. Ekki í fyrsta sinn, enda hefur staða fiskistofna þar lengi verið slæm, og klárlega ekki í síðasta skipti sem svo ber við. Niðurskurðurinn náði ekki síst til fiskimiðanna við Írland. Írar vildu því virkja samning sem þeir höfðu við ESB sem var hluti af sameiginlegri sjávarútvegsstefnu sambandsins og fól í sér sérlausn þess efnis að ef til mikils niðurskurðar, eins og nú, yrði þeim tryggð ákveðin lágmarks aflahlutdeild sem kæmi af kvóta annarra ríkja. Samningur þessi gengur einnig undir heitinu Haag-viðmið. Deilan á Írlandi snerist ekki um það hvort draga þyrfti úr heildarafla. Hún snerist um það hvort beita ætti svokölluðum Haag-viðmiðum, fyrirkomulagi sem Írar hafa litið á sem tryggingu um lágmarks aflahlutdeild við verulegan niðurskurð. Þegar ákvörðunin var tekin var þeirri útfærslu ekki beitt með þeim hætti sem Írar töldu samrýmast fyrri framkvæmd. Þetta atriði er kjarni málsins. Villigötur Andrésar Haag-viðmiðin eru ekki sáttmálafest undanþága heldur hluti af framkvæmd sameiginlegrar stefnu. Sameiginlega sjávarútvegsstefnan fellur undir einkavaldsvið sambandsins samkvæmt 3. gr. TFEU. Á slíkum sviðum gildir meirihlutaregla. Þegar meirihluti aðildarríkja styður tiltekna niðurstöðu getur einstakt ríki ekki stöðvað hana. Írar gátu því ekki komið í veg fyrir þá útfærslu sem samþykkt var. Þetta minnist Andrés ekkert á en fer mikinn um að við sem teljum hag Íslands betur borgið utan ESB hefðum himinn höndum gripið fréttir af óánægju írskra sjómanna með fyrirhugaðan niðurskurð á makrílveiðum. „Þeir túlkuðu þetta strax sem enn eitt dæmi um að Evrópusambandið væri að níðast á smáþjóð – klassísk frásögn þeirra sem vilja sýna Brussel sem yfirþjóðlegt skrímsli.“ Einnig hélt Andrés því fram að alþjóðlegt vísindaráð hefði tekið ákvörðunina. Með þessu er Andrés að fría ESB ábyrgð. Það var sambandið sem tók ákvörðunina eins og alltaf. Ef vísindaráðið hefði ráðið hefði niðurskurðurinn verið mun meiri. Þá voru það forystumenn í írskum stjórnmálum og sjávarútvegi sem töluðu um níðingsskap ESB. Það sem bent hefur verið á í umræðu af minni hálfu og fleiri er að sérlausn sem Írar töldu sig hafa í hendi reyndist haldlaus þegar á reyndi. Írar gátu ekki rönd við reist gegn þessu. Fjölmennustu ríki ESB, Frakkland og Þýskaland ásamt meðreiðarsveinunum Póllandi og Hollandi, komu í veg fyrir að staðið yrði við samninginn í krafti íbúafjölda síns. Hann ræður mestu um möguleg áhrif innan ESB. Það sem undirrituð og fleiri höfum bent á er að Írar eru þrátt fyrir allt 5,4 milljónir, um fjórtán sinnum fleiri en við Íslendingar og hafa vægi eftir því. Hvernig myndi okkur farnast við slíkar aðstæður? Þegar gerðir samningar eru sviknir við milljónaþjóðir? Ofan á þetta kýs Andrés að gera lítið úr írskum sjávarútvegi. Hann skipti Írland litlu efnahagslega og ekki nálægt eins miklu og Ísland. Hann skiptir samt ýmsar írskar sjávarbyggðir öllu máli. Reynsla Íra sýnir einfaldlega að ekki sé hægt að treysta því að ESB standi við gerða samninga. Eftir stendur spurningin: Hver er lagaleg staða fyrirkomulags sem ekki er fest í frumrétti sambandsins heldur byggir á framkvæmd innan sameiginlegrar stefnu? Reynslan frá Írlandi bendir til þess að slík útfærsla sé háð meirihlutavilja innan ráðherraráðsins. Það er ekki brot á sáttmálanum. Það er birtingarmynd hans. Í umræðu um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu er eðlilegt að hafa þetta í huga. Á sviðum sem falla undir einkavaldsvið sambandsins eru varanlegar undanþágur aðeins tryggðar með breytingu á sáttmálum. Að öðru leyti lúta sérlausnir sama ákvörðunarkerfi og aðrar ráðstafanir innan stefnunnar. Það er sú staðreynd sem atburðarásin á Írlandi dregur fram. Höfundur er hagfræðingur og í stjórn Heimssýnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar