Heuermann sagður ætla að játa Samúel Karl Ólason skrifar 27. mars 2026 10:12 Rex Heuermann hefur verið ákærður fyrir að myrða sjö konur frá 2010. AP/James Barbone, Newsday Rex Heuermann, sem grunaður er um hin alræmdu Gilgo Beach-morð, er sagður ætla að játa sekt í dómsal í næsta mánuði. Heuermann, sem er giftur íslenskri konu, hefur verið ákærður fyrir að myrða sjö konur yfir sautján ára tímabil. Hann hefur áður lýst yfir sakleysi sínu en þann 8. apríl er búist við að hann muni breyta því.
Samkvæmt heimildum AP fréttaveitunnar hafa fjölskyldur fórnarlamba og fjölskylda Heuermanns verið látin vita af því að þetta standi til. Lögmenn hans hafa ekki svarað fyrirspurnum fréttaveitunnar. Heuermann er 62 ára gamall og hefur hann verið giftur hinni íslensku Ásu Ellerup um langt skeið. Til stóð að réttarhöldin gegn honum myndu hefjast í september. Hann var handtekinn í júlí 2023 en þá var hann grunaður um að hafa myrt þrjár konur. Síðan þá hefur hann verið ákærður fyrir að myrða fjórar konur til viðbótar. Allar konurnar stunduðu vændi en fyrsta konan hvarf árið 2010. Saksóknarar hafa bendlað Heuermann við morðin með símagögnum, lífsýnum og sögu hans á internetinu. Þá segjast rannsakendur hafa fundið skjal á tölvu hans, þar sem hann er sagður hafa lagt á ráðin um val á konum, pyntingar, morð og hvernig hann ætti að losa sig við líkamsleifar. Sjá einnig: Grunaður um sjöunda morðið Á undanförnum mánuðum hafa lögmenn Heuermanns reynt að fá dómara málsins til að banna saksóknurum að nota gömul lífsýni sem fundust á líkum kvennanna og voru tengd eiginkonu hans og dóttur í réttarhöldunum og að fá hann til að brjóta réttarhöldin upp. Þeim kröfum var öllum hafnað.
Bandaríkin Erlend sakamál Gilgo Beach-raðmorðinginn Tengdar fréttir Sannfærð um sakleysi eiginmannsins og segir hann hetjuna sína Ása Ellerup, eiginkona meinta raðmorðingjans Rex Heuermann, er fullviss um að hann sé saklaus. Hún segir hann vera hetju sína og að hún hafi orðið ástfangin af honum upp á nýtt þegar hún sá hann fyrst á bak við lás og slá. 9. júní 2025 13:33 Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Ása Guðbjörg Ellerup, eiginkona Rex Heuermann sem ákærður hefur verið fyrir sex morð í Gilgo Beach-málinu, hyggst selja hús þeirra hjóna á Long Island þar sem talið er að voðaverkin hafi verið framið. 24. nóvember 2024 13:46 Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Lögmaður Rex Heuermann, sem ákærður hefur verið fyrir sex morð í Gilgo Beach-málinu svokallaða, vill að lífsýni í málinu verði útilokuð frá réttarhöldunum. Í dómsal í Suffolk-sýslu í New York í gær, lýsti lögmaðurinn tækninni sem notuð var við að bendla Heuermann við morðin við „töfra“. 17. október 2024 10:22 Ása segist ætla að leyfa eiginmanni sínum að „njóta vafans“ Ása Guðbjörg Ellerup, eiginkona mannsins sem er grunaður um að vera Gilgo Beach-raðmorðinginn, sendi frá sér yfirlýsingu á miðvikudag þar sem hún segist ætla að leyfa manninum sínum að „njóta vafans“. 15. mars 2024 06:41 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira
Sannfærð um sakleysi eiginmannsins og segir hann hetjuna sína Ása Ellerup, eiginkona meinta raðmorðingjans Rex Heuermann, er fullviss um að hann sé saklaus. Hún segir hann vera hetju sína og að hún hafi orðið ástfangin af honum upp á nýtt þegar hún sá hann fyrst á bak við lás og slá. 9. júní 2025 13:33
Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Ása Guðbjörg Ellerup, eiginkona Rex Heuermann sem ákærður hefur verið fyrir sex morð í Gilgo Beach-málinu, hyggst selja hús þeirra hjóna á Long Island þar sem talið er að voðaverkin hafi verið framið. 24. nóvember 2024 13:46
Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Lögmaður Rex Heuermann, sem ákærður hefur verið fyrir sex morð í Gilgo Beach-málinu svokallaða, vill að lífsýni í málinu verði útilokuð frá réttarhöldunum. Í dómsal í Suffolk-sýslu í New York í gær, lýsti lögmaðurinn tækninni sem notuð var við að bendla Heuermann við morðin við „töfra“. 17. október 2024 10:22
Ása segist ætla að leyfa eiginmanni sínum að „njóta vafans“ Ása Guðbjörg Ellerup, eiginkona mannsins sem er grunaður um að vera Gilgo Beach-raðmorðinginn, sendi frá sér yfirlýsingu á miðvikudag þar sem hún segist ætla að leyfa manninum sínum að „njóta vafans“. 15. mars 2024 06:41