„Of stórt tækifæri til að hoppa ekki á það“ Aron Guðmundsson skrifar 27. mars 2026 15:00 Jansu Daði í leik með íslenska landsliðinu VÍSIR/VILHELM Janus Daði Smárason, landsliðsmaður í handbolta, verður leikmaður spænska stórveldisins Barcelona í sumar. Tækifærið, að ganga í raðir eins stærsta félags í heimi var of gott til að stökkva ekki á það. „
Ég er stoltur, spenntur. Mér finnst ég vera á toppnum á mínum ferli til þessa bæði líkamlega og andlega. Finnst það ákveðin viðurkenning að vera sóttur þangað,“ segir Janus Daði í samtali við íþróttadeild Sýnar en nánar verður rætt við hann í Sportpakkanum að loknum kvöldfréttum Sýnar í kvöld. Aðdragandinn að skiptunum hefur verið langur en Janus gengur í raðir Börsunga frá Pick Szeged í Ungverjalandi. „Fyrst heyrir maður eitthvað og hugsar maður með sér: „Vá Barcelona, geðveikt.“ Ef það er möguleiki þá skoðar maður hann. Eftir að hafa velt þessu fyrir mér fram og til baka finnst mér þetta of stórt tækifæri til að hoppa ekki á það. Ég held þetta sér stærsta félag í heimi. Að fara í sólina skemmir ekki fyrir. Við erum bara spennt að færa okkur suður eftir. Prófa að vera partur af svona apparati.“ Gott fyrir Barcelona og landsliðið Heiðurinn að verða leikmaður Barcelona sé mikill en þar ætlar Janus Daði ekki að vera varaskeifa heldur einn af burðarstólpum liðsins. „Bendir á að maður er að gera eitthvað rétt. Fólk virðist kunna að meta það sem maður stendur fyrir. Á sama tíma gefur það manni aukakraft að halda áfram. Þig langar í meira. Það spilar saman með því sem hefur verið að gerast í landsliðinu. Við finnum það þar að við erum að nálgast eitthvað stórt. Ég held þetta passi bara vel fyrir bæði.“ Íslendingunum fjölgar í liðinu. Viktor Gísli Hallgrímsson er fyrir á mála hjá félaginu en Janus Daði ræddi mikið við hann í aðdraganda skiptanna sem og Aron Pálmarsson, fyrrverandi leikmann liðsins. „Ég þekki náttúrulega Aron Pálmars líka rosalega vel. Hann var lengi á mála hjá félaginu á sínum tíma. Gott að fá punkta frá þeim hvernig þetta sé, hvort þetta sé ekki alveg örugglega málið. Þeir drógu ekkert úr því að þetta væri frábær staður.“ Nánar verður rætt við Janus Daða í Sportpakkanum á Sýn að loknum kvöldfréttum í kvöld.
Spænski handboltinn Landslið kvenna í handbolta Mest lesið Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Golf Beint: Gunnlaugur Árni á US Open Golf Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Golf Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Fótbolti Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open Sport Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Fótbolti Spila æfingarleik á meðan HM stendur Fótbolti Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Golf Fleiri fréttir Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Sjá meira