Alvarleg mistök hjá barnaverndarþjónustu: „Við sofnuðum á verðinum“ Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 27. mars 2026 19:23 Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarmála hjá Reykjanesbæ segir niðurstöður GEV áfall. Herdís Gunnarsdóttir forstjóri GEV segir að úrbótum þurfi að vera lokið fyrir áramót. Vísir Alvarleg mistök hafa orðið hjá barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar við vistun barna samkvæmt Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála. Forstjóri stofnunarinnar segir alvarlegast að sveitarfélagið hafi ekki sinnt innra eftirliti. Sviðsstjóri velferðarmála segir að nú þegar hafi verið brugðist við.
Töluverður og alvarlegur misbrestur hefur orðið hjá barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar við vistun barna utan heimilis á grundvelli barnaverndarlaga. Frumkvæðisathugun Gæða og eftirlitsstofnunar velferðarmála sem gerð var í kjölfar fjölda kvartana leiddi þetta í ljós. Tímabilið sem var til skoðunar var frá janúar 2024 til febrúar 2025. Stofnunin krefur barnaverndarþjónustuna um úrbætur sem á að vera lokið gerir athugasemdir í 25 liðum og krefur barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar um tafarlausar úrbætur. Mikill fjöldi athugarsemda „Við komust að þeirri niðurstöðu að það voru 25 atriði í málsmeðferð varðandi vistun barna, þá bæði hjá fósturforeldrum og utan heimilis sem var ábótavant. Þetta eru fjölmargir þættir sem eru ekki í lagi,“ segir Herdís. Herdís segir alvarlegast að sveitarfélagið sjálft hafi ekki sinnt innra eftirliti. „Ég get sagt að það er fyrst og fremst innra eftirlitið sem bregst. Það þarf að efla það hjá sveitarfélaginu. Þau þurfa að fylgjast betur með og fylgja öllum lögum og reglugerðum þar sem sagt er fyrir um hvernig á að sinna þessum málum,“ segir Herdís. Ekkert eftirlit í þrjú ár Meðal þess sem sjá má í skýrslunni er að fósturforeldrar voru sammála um að eftirlit skorti og lýsti eitt foreldri að ekkert eftirlit hefði verið í þrjú ár. Þá kemur fram annars staðar að töluvert skorti á að fósturforeldrar hafi haft til þess gilt leyfi. Herdís segir að ríflega 20 mál hafi verið skoðuð en ekkert bendi þó til þess að barn hafi orðið fyrir skaða. „Við höfum ekki fengið vitneskju um það í þessari athugun að það hafi orðið beinn skaði,“ segir Herdís. Niðurstöðurnar áfall Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarmála hjá Reykjanesbæ segir niðurstöður GEV áfall. „Okkur var náttúrulega verulega brugðið en við fengum skýrsluna með nokkrum fyrirvara og gátum sest niður með barnaverndarþjónustunni og farið yfir ábendingarnar frá GEV. Við tökum þær mjög alvarlega,“ segir Hera. Aðspurður um hvað fór úrskeiðis svarar Hera: „ Við sofnuðum á verðinum varðandi innra eftirlit.“ Bjartsýn á að ná úrbótum fyrir áramót Hera segir úrbætur hafnar og er bjartsýn á að það takist að innleiða þær fyrir næstu áramót sem er fresturinn sem GEV gefur. Hún telur ekki að vinnubrögðin hingað til hafi valdið börnunum skaða. „Við sjáum ekki að þetta hafi skaðað, þ.e. það voru ekki ábendingar vegna aðbúnaðar barnanna eða um úrræðin sem við erum að nýta. Þetta er fyrst og síðast, að við þurfum að skrá betur. Það var ljósið í myrkrinu þegar maður fær úttekt með svona mörgum ábendingum að þetta voru fyrst og fremst ábendingar um skráningar. Þetta sýnir líka hversu mikilvæg Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála er,“ segir Hera að lokum.
Ofbeldi gegn börnum Heilbrigðismál Reykjanesbær Vistheimili Barnavernd Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Fleiri fréttir Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Sjá meira