„Ég var geggjuð skvísa, en það er ekki mér að þakka“ Rakel Sveinsdóttir skrifar 28. mars 2026 10:02 Erla Ósk Ásgeirsdóttir, stjórnarkona og verðandi frumkvöðull, með hundinn Ása en Ási fer aðeins út að labba á morgnana ef honum hugnast veðrið. Erla var geggjuð skvísa á fermingadaginn, þökk sé stóru systurinni Kristínu. Vísir/Vilhelm Erla Ásgeirsdóttir, stjórnarkona og tilvonandi frumkvöðull, segir nátthrafnana á heimilinu oft halda vöku fyrir þeim hjónum. En þarf þó að viðurkenna á sig að vaka stundum of lengi við að horfa á sjónvarpið uppi í rúmi eða hlusta á Storytel.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Flesta virka daga vakna ég klukkan 6.30 og hendi í eina vél, gleymi kaffibollanum á kaffivélinni og dríf mig svo í Mjölni í þjálfun með mögnuðum konum sem kalla sig Jóhannsdætur. Hina dagana vakna ég á eðlilegum tíma með fjölskyldunni og við komum strákunum af stað í skólann, svo fer ég út að labba með hundinn okkar, Ása, ef veðrið er að hans skapi.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Ég fæ mér góðan kaffibolla og fer yfir dagatalið og set niður verkefni dagsins. Stundum skrifa ég líka í dagbókina það helsta sem hefur verið í gangi síðustu daga.“ Á skalanum 0-10: Hversu mikil skvísa fannst þér þú vera á fermingardaginn? Ég var geggjuð skvísa, en það er ekki mér að þakka. Ég er svo heppin að eiga hana Kristínu systur að sem er hárgreiðslukona með mjög háa tískuvitund, hún valdi fötin og greiddi mér. Þannig að ég er mjög ánægð með myndina enn í dag enda systir mín smekkmanneskja.“ Skipulagið sem virkar vel fyrir Erlu er að tengja markmið við sýnina, brjóta markmiðin niður í litla áfanga og tryggja þannig að hún sé alltaf að klára einhvern hluta af vegferðinni.Vísir/Vilhelm Í hvaða verkefni ertu að vinna helst þessa dagana? „Ég er að vinna að mínu eigin nýsköpunarfyrirtæki sem ég hlakka mikið til að kynna á næstunni, það er eitthvað sérstaklega gefandi við að búa eitthvað til frá grunni. Ég er líka með annan fótinn í hótelgeiranum og að skoða spennandi tækifæri þar með góðum hópi. Svo er ég í virkilega áhugaverðu hlutverki sem stjórnarkona í Bláa lóninu. Við vorum að ráða nýjan forstjóra, hana Sigríði Margréti og erum í miklum uppbyggingarfasa og stefnum á skráningu á markað á næstunni. Það er líka mjög gefandi og lærdómsríkt að fá að leiða Festu – miðstöð um sjálfbærni og Jafnvægisvogarráð. Ég brenn fyrir sjálfbærni og það er svo gaman að fá að vinna með fyrirtækjum og einstaklingum sem eru í fremstu röð á þessu sviði og ætla sér að skilja eftir betri heim fyrir komandi kynslóðir.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? Ég er mjög árangursdrifin og finnst mikilvægt að vera með skýra sýn og tengja markmið við sýnina og brjóta þau svo niður í litla áfanga þannig að ég sé alltaf að klára einhvern hluta af vegferðinni. Þannig upplifi ég að sýnin þokist nær og litla sigra á leiðinni.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Það er mjög gott ef ég sofnuð fyrir klukkan tólf á miðnætti. Við erum með 7 og 15 ára nátthrafna hér á heimilinu sem eiga það til að halda okkur hjónum vakandi. Ég er líka stórnotandi á Storytel og við horfum oft á sjónvarpið uppi í rúmi, sem er alls ekki mælt með, þannig að það er ekki hægt að kenna börnunum um allt.“
Kaffispjallið Tengdar fréttir „Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður“ Brynjar Valsteinsson, framkvæmdastjóri Gosfélagsins, segir morgnana frekar einfalda rútínu en viðurkennir að fara of seint að sofa. Þá kalli á að horfa á íþróttir eða ókláraðan þátt. Hetjur úr gömlum bíómyndum eru annars vegar einn grjótharður og hins vegar einn létt geggjaður. 14. mars 2026 10:00 Það getur allt gerst ef forstjórinn vakir fram yfir klukkan tíu Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar, er snúsari og hæg í gang á morgnana en mjög góð í að segja brandara. Oft sofnar hún með dóttur sinni rétt fyrir klukkan tíu á kvöldin, en í þau skipti sem hún nær að vaka fram yfir þann tíma getur allt gerst: Kvöldin eru besti tíminn! 21. mars 2026 10:02 „Algjörir B-menn og kreistum hverja mínútu sem okkur gefst“ Ásmundi Atlasyni, markaðsstjóra Dominos, fannst hann nettur á fermingardaginn, enda í sínum fyrstu jakkafötum. Þessa dagana snýst allt um nýfædda soninn og nú er spurning hvort sá verði jafn mikill B-maður og stóri bróðir og pabbi. 28. febrúar 2026 10:02 Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova, átti það til að mála sig í bílnum á leiðinni í vinnuna en er nú farin að vera duglegri að hafa sig til heima áður en hún leggur af stað. Sylvía gefur sjálfri sér 7-8 í einkunn fyrir handlagnina heima fyrir. 7. mars 2026 10:02 Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise, býr með B-týpum og segir því að dagarnir hefjist hjá sér með skipulagðri keðjuvakningu, þar sem hann byrjar á því að vekja konuna með kaffi, hundinn með morgunmat og síðan er það að vekja krakkana. 14. febrúar 2026 10:00 Mest lesið Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent PlayStation 5 slær Xbox 360 við Viðskipti erlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Viðskipti innlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Flugu yfir Atlantshafið á fitu og sykri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Segðu Já í vinnunni og það strax! Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Uppsagnir fram undan og óttinn vex Munu opnu vinnurýmin hverfa eins og hornskrifstofurnar? Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Verðmæta samtalið er oft við kaffivélina eða á ganginum Sumarfrísdagur númer átta mesta sælan Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Meiri árangur í líkamsrækt og íþróttum með nýrri íslenskri tækni Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Sjá meira
„Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður“ Brynjar Valsteinsson, framkvæmdastjóri Gosfélagsins, segir morgnana frekar einfalda rútínu en viðurkennir að fara of seint að sofa. Þá kalli á að horfa á íþróttir eða ókláraðan þátt. Hetjur úr gömlum bíómyndum eru annars vegar einn grjótharður og hins vegar einn létt geggjaður. 14. mars 2026 10:00
Það getur allt gerst ef forstjórinn vakir fram yfir klukkan tíu Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar, er snúsari og hæg í gang á morgnana en mjög góð í að segja brandara. Oft sofnar hún með dóttur sinni rétt fyrir klukkan tíu á kvöldin, en í þau skipti sem hún nær að vaka fram yfir þann tíma getur allt gerst: Kvöldin eru besti tíminn! 21. mars 2026 10:02
„Algjörir B-menn og kreistum hverja mínútu sem okkur gefst“ Ásmundi Atlasyni, markaðsstjóra Dominos, fannst hann nettur á fermingardaginn, enda í sínum fyrstu jakkafötum. Þessa dagana snýst allt um nýfædda soninn og nú er spurning hvort sá verði jafn mikill B-maður og stóri bróðir og pabbi. 28. febrúar 2026 10:02
Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova, átti það til að mála sig í bílnum á leiðinni í vinnuna en er nú farin að vera duglegri að hafa sig til heima áður en hún leggur af stað. Sylvía gefur sjálfri sér 7-8 í einkunn fyrir handlagnina heima fyrir. 7. mars 2026 10:02
Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise, býr með B-týpum og segir því að dagarnir hefjist hjá sér með skipulagðri keðjuvakningu, þar sem hann byrjar á því að vekja konuna með kaffi, hundinn með morgunmat og síðan er það að vekja krakkana. 14. febrúar 2026 10:00