Viðskipti innlent

Fljúga dag­lega til Boston

Bjarki Sigurðsson skrifar
Delta mun fljúga daglega milli Keflavíkur og Boston. 
Delta mun fljúga daglega milli Keflavíkur og Boston.  Delta Air Lines

Bandaríska flugfélagið Delta tilkynnti í dag að það ætli að hefja áætlunarflug milli Boston Logan-flugvallar og Keflavíkurflugvallar í apríl á næsta ári. Flugið verður í boði fram í lok október. 

Boston er ein mikilvægasta tengimiðstöð Delta fyrir flug yfir Atlantshafið. Borgin er jafnframt ein af lykilgáttum flugfélagsins fyrir áframhaldandi tengingar til fjölmargra áfangastaða víðs vegar um Bandaríkin.

Delta hóf flug til Íslands árið 2011 með beinu flugi milli New York og Keflavíkur. Nýja leiðin eykur enn frekar aðgengi ferðamanna frá Bandaríkjunum að Íslandi.

„Við fögnum því mjög að Delta Air Lines bæti við daglegu flugi frá Boston til Keflavíkur. Boston-svæðið er einn mikilvægasti markaður okkar í Norður-Ameríku og með þessari nýju tengingu opnast enn fleiri möguleikar fyrir farþega til að ferðast til og frá Íslandi. Flugið styrkir tengingar Íslands við Bandaríkin og eykur samkeppnishæfni Keflavíkurflugvallar sem alþjóðlegrar tengimiðstöðvar,“ er haft eftir Grétari Má Garðarssyni, forstöðumanni flugfélaga- og markaðsmála á Keflavíkurflugvelli, í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×