Formúla 1

Antonelli á ráspól en Verstappen brjálaður út í bílinn

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Kimi Antonelli fékk verðlaun frá Kotozakura Masakatsu II eftir tímatökuna í morgun.
Kimi Antonelli fékk verðlaun frá Kotozakura Masakatsu II eftir tímatökuna í morgun. Mark Thompson/Getty Images

Eftir að hafa unnið sína fyrstu Formúlu 1 keppni fyrir tveimur vikum verður Kimi Antonelli, ökumaður Mercedes, aftur á ráspól þegar kappaksturinn í Japan hefst í fyrramálið.

Engum ætti að koma á óvart að Mercedes ökumennirnir hafi tryggt sér efstu tvö sætin en þeir hafa sýnt mikla yfirburði í upphafi tímabils.

George Russell kvartaði reyndar aðeins yfir lélegu gripi á afturdekkjunum í fyrstu tveimur umferðunum en náði sér á strik í þriðju og síðustu umferðinni. Hann endaði hins vegar 0,298 sekúndum á eftir Antonelli, sem kom í mark á tímanum 1:28,778.

Ökumenn McLaren og Ferrari fylgdu þeim fast eftir. Oscar Piastri hjá McLaren hafnaði í þriðja sæti í tímatökunni og Charles Leclerc hjá Ferrari varð fjórði. Ríkjandi heimsmeistarinn Lando Norris hjá McLaren verður fimmti af stað en Lewis Hamilton hjá Ferrari verður sá sjötti.

Vandræðin héldu áfram hjá margfalda heimsmeistaranum Max Verstappen. Hann hefur verið á ráspól í síðustu fjórum keppnum í Suzuka en endaði í ellefta sæti í tímatökunni og sagði Red Bull bílinn „óökuhæfan.“


Tengdar fréttir

Ósáttur Verstappen lét reka blaðamann út: „Hypjaðu þig“

Fjórfaldi Formúlu 1 heimsmeistarinn Max Verstappen, ökuþór Red Bull Racing, lét reka blaðamann af svæði liðsins á Suzuka brautinni í Japan í dag sökum spurningar sem umræddur blaðamaður bar upp eftir lokakappakstur síðasta tímabils í Abu Dhabi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×