Framkvæmdaleyfi Hvalárvirkjunar fellt úr gildi Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 28. mars 2026 14:55 Frá vegagerð í Ingólfsfirði á Ströndum sumarið 2019 í tengslum við Hvalárvirkjun. KMU Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi leyfisveitingu hreppsnefndar Árneshrepps fyrir framkvæmdum við fyrsta áfanga Hvalárvirkjunar í Ófeigsfirði á Ströndum.
Í ágúst 2025 samþykkti hreppsnefndin að veita Vesturverki ehf. framkvæmdaleyfi fyrir fyrsta áfanga virkjunarinnar. Þessum fyrsta áfanga er ætlað að virkja hluta af rennsli Hvalár, Rjúkanda og Eyvindarfjarðarár á Ströndum til raforkuframleiðslu með uppsettu afli um 55 megavatta og orkuframleiðslu sem nemur um 320 gígavattklukkustundum á ári. Þátttaka almennings ekki tryggð Í vetur kom fram að Vesturverk áformaði að undirbúningsframkvæmdir myndu hefjast nú í vor eftir að Hæstiréttur hafði hafnað kröfu virkjunarandstæðinga í ótengdu máli er varðaði jarðarmörk Drangavíkur. Fimm umhverfisverndarsamtök kærðu ákvörðun hreppsnefndarinnar. Það eru þau Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök, samtökin Náttúrugrið, Náttúruverndarsamtök Íslands og Ungir umhverfissinnar. Fossinn Drynjandi í Hvalá.Egill Aðalsteinsson Þau töldu verulega annmarka á umhverfismati virkjunarinnar framkvæmdaleyfi hefði verið veitt fyrir fyrsta áfanga án viðhlítandi rannsókna á áhrif framkvæmdanna á vatn, óbyggð víðerni og jarðminjar. Þau gagnrýna sérstaklega að verkefnið hafi verið brotið upp í áfanga til að komast hjá heildstæðu mati á áhrifum þess. Þá benda þeir á að vernduð náttúruverðmæti, þar á meðal jarðminjar, hafi ekki verið metin með fullnægjandi hætti og að þátttaka almennings í ferlinu hafi því ekki verið tryggð. Áhrif á vatnshlot ekki nógu skýr Árneshreppur dró fullyrðingu kærendanna um ófullnægjandi rannsókn á trjábolaförum í efa og hafnaði sjónarmiðum þeirra um að löggjöf á sviði umhverfismála sé sniðgengin með því að veita leyfi til hluta framkvæmda við stærri framkvæmd. Uppskipting deiliskipulags hafi ekki verið gerð til að komast hjá umhverfismati framkvæmdar eða gera minna úr raunverulegum áhrifum heildarframkvæmdar. Drónamynd sem þeir Tómas Guðbjartsson og Ólafur Már Björnsson tóku af landsvæðinu sem fer undir vatn með Hvalárvirkjun.Tómas Guðbjartsson og Ólafur Már Björnsson Heildarsýn á áhrif framkvæmda sé tryggð við mat á umhverfisáhrifum framkvæmdar. Horft sé til afmarkaðri þátta þegar fjallað sé um einstakar skipulagsáætlanir. Almenningur hafi átt kost á því að koma að sjónarmiðum við umhverfismat vegna breytinga á deiliskipulagi svæðisins, þar hafi verið kynntar niðurstöður vegna trjábolafararannsókna og fleiri þátta. Úrskurðarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að verulegir annmarkar hefðu verið á undirbúningi og málsmeðferð við veitingu framkvæmdaleyfisins, einkum vegna þess að Árneshreppur tók ekki nægilega rökstudda afstöðu til áhrifa framkvæmdarinnar á vatnshlot í samræmi við lög um stjórn vatnamála og vatnaáætlun. Nefndin taldi að slíkur annmarki væri þess eðlis að ákvörðunin gæti ekki staðið óbreytt og féllst því á kröfu umhverfissamtakanna. Ákvörðun hreppsnefndar Árneshrepps um að veita framkvæmdaleyfi fyrir fyrsta áfanga Hvalárvirkjunar var því felld úr gildi.
Deilur um Hvalárvirkjun Árneshreppur Vatnsaflsvirkjanir Orkumál Umhverfismál Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira