„Ofboðslega stórir skór að fylla“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. apríl 2026 11:01 KA hefur leikið samfleytt í efstu deild frá 2017. vísir/diego Bjarni Guðjónsson, sérfræðingur Stúkunnar, segir að KA hljóti að stefna á að komast í efri hluta Bestu deildar karla. Hann segir að liðið þurfi að fylla skörðin sem hafa myndast í vörn þess.
KA er spáð 9. sæti Bestu deildar karla í árlegri spá íþróttadeildar Vísis og Sýnar. Undanfarin tvö ár hafa KA-menn byrjað illa en vaxið eftir því sem á tímabilið hefur liðið. KA hefur endað í 7. sæti þrjú ár í röð en Bjarni segir að þar á bæ leyfi menn sér að vonast eftir betri árangri í sumar. „Það eru reyndar einhvern veginn allir sem láta sig dreyma um það. Það eru kannski liðin tvö sem komu upp sem eru að tala um það að þau ætli að halda sér í deildinni en hin ætla öll í Evrópukeppni, að því sem manni sýnist allavega,“ sagði Bjarni er hann var beðinn um að rýna í lið KA. Klippa: Besta-spáin 2026 - 9. sæti „Það er dálítið mikið af breytingum á liðinu hjá þeim. Hrannar [Björn Steingrímsson] meiðist og Ívar [Örn Árnason] var seldur í Breiðablik. Þannig að það eru skorð höggvin og þetta eru tveir leiðtogar í hópnum og í liðinu þegar þeir hafa verið að spila. Þannig að við þurfum að sjá hverjir leysa þann hluta hjá KA. En svo hafa þeir reyndar styrkt sig þannig að breytingarnar eru oft á tíðum erfiðar fyrir lið og sérstaklega þá í upphafi móts. En það verður fróðlegt að sjá. Byrjunin hjá þeim skiptir rosalega miklu máli, að komast á góðan stað snemma í mótinu hjálpar liðunum og fleytir þeim langt og hugsanlega þá í efri hlutann og KA hlýtur að stefna á það.“ Þurfa leiðtoga í vörnina Birnir Snær Ingason kom gríðarlega sterkur inn í lið KA um mitt síðasta sumar. Bjarni segir að KA veiti ekki af annarri eins styrkingu fyrir þetta tímabil en þá frekar aftarlega á vellinum. „Þeir þyrftu leiðtoga í vörnina myndi ég segja. Það væri eitthvað sem væri ofboðslega gott fyrir KA-menn að ná í og ég efast ekki um að þeir séu búnir að leita að því. En það er hægara sagt en gert,“ sagði Bjarni. „Það er eitt að sækja einhvern sem er nógu góður og svo líka þá að hann eigi að vera leiðtogi. Þú getur verið leiðtogi á einum stað og þú verður það kannski ekkert endilega á öðrum. Þannig að þetta eru ofboðslega stórir skór að fylla. En það er væntanlega það sem þeir eru að leita að. Fram á við eru þeir náttúrulega, geta þeir verið mjög hættulegir.“ KA fær Stjörnuna í heimsókn í 1. umferð Bestu deildar karla klukkan 17:00 sunnudaginn 12. apríl.
Besta deild karla KA Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ Sport „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ Handbolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira