Var eitrað fyrir leikmönnum Sporting? „Þetta var einhver holræsislykt“ Henry Birgir Gunnarsson skrifar 31. mars 2026 08:00 Orri Freyr í leik með Sporting. vísir/getty Ótrúleg uppákoma átti sér stað fyrir leik Porto og Sporting í portúgalska handboltanum um nýliðna helgi. Eitruð lykt í búningsklefa Sporting varð þess valdandi að þjálfari og leikmenn veiktust.
Þetta var fyrsti leikur liðanna í úrslitakeppninni og ljóst að það átti að beita öllum brögðum. Skömmu eftir að leikmenn Sporting komu inn í búningsklefann voru allir sendir út úr klefanum enda lyktin allt annað en eðlileg þar inni. „Þjálfarinn og einn leikmaður fara að finna mikla vanlíðan. Þeir fá svima og í raun þurfa bara að leggjast á gólfið. Eftir það var okkur bannað að fara inn í klefann og svo verður mikil atburðarrás eftir það,“ segir Orri Freyr Þorkelsson, leikmaður Sporting, við íþróttadeild. Þetta var algjör viðbjóður „Þetta var einhver svona holræsislykt og loftið þarna inni mjög þungt. Þetta var algjör viðbjóður. Maður hefur farið inn í klefa með vondri lykt en þetta var aðeins meira en það. Að fara út var eins og að fá súrefnisgrímu á andlitið.“ Þrátt fyrir mótlætið náði Sporting að vinna leikinn sem var seinkað vegna uppákomunnar. Forráðamenn Sporting eru eðlilega allt annað en sáttir og þeir segja þessa hegðun glæpsamlega og krefjast aðgerða frá yfirvöldum enda urðu menn veikir. „Svo urðu fleiri leikmenn sem voru að finna fyrir hálsinum og sumir urðu rauðir í augunum og þurftu augndropa. Það er eins og það hafi eitthvað verið þarna í loftinu en ég veit ekki hvað það er. Það voru tveir sem misstu af leiknum og þurftu aðstoð frá sjúkraliðum.“
Handbolti Portúgalski boltinn Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira