Ef þú átt rætur í Grindavík - þá getur þú haft áhrif á framtíð hennar Ásrún Helga Kristinsdóttir skrifar 31. mars 2026 10:01 Undanfarin misseri höfum við Grindvíkingar þurft að takast á við ólíkar aðstæður og taka erfiðar ákvarðanir og leiðir okkar hafa því legið í mismunandi áttir. Sumir eru komnir aftur heim, aðrir ekki, og enn aðrir eru óákveðnir um næstu skref. Allt er það skiljanlegt. Það sem sameinar okkur er þó enn til staðar, tengingin við Grindavík og samfélagið sem við eigum saman. Undanfarið hef ég fundið fyrir því, í samtölum við fólk, að óvissan um framtíðina vegur þungt. Það er eðlilegt eftir það sem á undan er gengið. En einmitt við þessar aðstæður skiptir mestu máli að við missum ekki trúna á samfélagið okkar. Með ákvörðun Alþingis og framkvæmd Þjóðskrár Íslands geta þeir sem áttu lögheimili í Grindavík þann 10. nóvember 2023 valið að kjósa í Grindavík í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí. Sú leið var ekki sjálfgefin. Það hefur verið lögð mikil vinna í að finna sanngjarna og réttláta lausn í fordæmalausum aðstæðum, og sú niðurstaða að gefa Grindvíkingum þetta val naut víðtæks stuðnings. Hún byggir á þeirri sýn að samfélag er ekki bundið við staðsetningu eina og sér, heldur fólkið sem tilheyrir því. Til þess að nýta þetta tækifæri þarf að skrá sig sérstaklega á vef Þjóðskrár til og með 1. apríl. Það tekur aðeins örfáar mínútur en getur haft áhrif til lengri tíma. Sveitarstjórnarkosningarnar snúast um hvernig Grindavík verður byggð upp á ný og hvaða ákvarðanir munu móta samfélagið á næstu árum. Sú framtíð snertir okkur öll líka þau sem eru ekki búsett í Grindavík í dag eða eru óákveðin um næstu skref. Það þarf ekki að búa í Grindavík til að hafa skoðun á framtíð hennar. Ef þú átt rætur í bænum, þá áttu líka erindi í það hvernig hann þróast. Ég mun sjálf kjósa í Grindavík. Ég hvet þig, hvar sem þú ert með lögheimili, til að gera það sama. Með því tökum við ekki aðeins þátt í kosningum heldur stöndum saman sem samfélag og sýnum að við höfum trú á framtíð Grindavíkur. Skráðu þig áður en fresturinn rennur út og hafðu áhrif. Höfundur er Grindvíkingur og í framboði til sveitarstjórnar í Grindavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Grindavík Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Sjá meira
Undanfarin misseri höfum við Grindvíkingar þurft að takast á við ólíkar aðstæður og taka erfiðar ákvarðanir og leiðir okkar hafa því legið í mismunandi áttir. Sumir eru komnir aftur heim, aðrir ekki, og enn aðrir eru óákveðnir um næstu skref. Allt er það skiljanlegt. Það sem sameinar okkur er þó enn til staðar, tengingin við Grindavík og samfélagið sem við eigum saman. Undanfarið hef ég fundið fyrir því, í samtölum við fólk, að óvissan um framtíðina vegur þungt. Það er eðlilegt eftir það sem á undan er gengið. En einmitt við þessar aðstæður skiptir mestu máli að við missum ekki trúna á samfélagið okkar. Með ákvörðun Alþingis og framkvæmd Þjóðskrár Íslands geta þeir sem áttu lögheimili í Grindavík þann 10. nóvember 2023 valið að kjósa í Grindavík í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí. Sú leið var ekki sjálfgefin. Það hefur verið lögð mikil vinna í að finna sanngjarna og réttláta lausn í fordæmalausum aðstæðum, og sú niðurstaða að gefa Grindvíkingum þetta val naut víðtæks stuðnings. Hún byggir á þeirri sýn að samfélag er ekki bundið við staðsetningu eina og sér, heldur fólkið sem tilheyrir því. Til þess að nýta þetta tækifæri þarf að skrá sig sérstaklega á vef Þjóðskrár til og með 1. apríl. Það tekur aðeins örfáar mínútur en getur haft áhrif til lengri tíma. Sveitarstjórnarkosningarnar snúast um hvernig Grindavík verður byggð upp á ný og hvaða ákvarðanir munu móta samfélagið á næstu árum. Sú framtíð snertir okkur öll líka þau sem eru ekki búsett í Grindavík í dag eða eru óákveðin um næstu skref. Það þarf ekki að búa í Grindavík til að hafa skoðun á framtíð hennar. Ef þú átt rætur í bænum, þá áttu líka erindi í það hvernig hann þróast. Ég mun sjálf kjósa í Grindavík. Ég hvet þig, hvar sem þú ert með lögheimili, til að gera það sama. Með því tökum við ekki aðeins þátt í kosningum heldur stöndum saman sem samfélag og sýnum að við höfum trú á framtíð Grindavíkur. Skráðu þig áður en fresturinn rennur út og hafðu áhrif. Höfundur er Grindvíkingur og í framboði til sveitarstjórnar í Grindavík.
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar