Viðskipti erlent

For­svars­menn Claude láku ó­vart sínum eigin frumkóða

Agnar Már Másson skrifar
Dario Amodei er forstjóri Anthropic.
Dario Amodei er forstjóri Anthropic. Getty

Starfsmenn tæknirisans Anthropic virðast óvart hafa lekið frumkóða risamállíkansins Claude Code. Lekinn ætti ekki að hafa nokkur áhrif á notendur en hann sviptir þó hulunni af tæknilausnum fyrirtækisins.

Tæknimiðillinn VentureBeat greinir frá þessu en Anthropic staðfestir þar að innri frumkóði forritunartólsins Claude Code, sem keyrir í útstöð (e. terminal), hafi óvart orðið aðgengilegur almenningi.

„Engin viðkvæm gögn um viðskiptavini eða reikningsupplýsingar voru undir eða gerð opinber,“ skrifar Anthropic í yfirlýsingu til VentureBeat. „Um er að ræða útgáfu sem er af völdum mannlegra mistaka, en ekki öryggisbrests.“ Unnið sé að verkferlum til að koma í veg fyrir að þetta gerist ekki aftur.

Nánar tiltekið var tæplega sextíu megabita map-skjali óvart hlaðið upp ásamt uppfærslu af pakkanum „@anthropic-ai/claude-code“ inni á NPM, sem er vettvangur þar sem forritarar deila kóðum sín á milli.

Netverjar höfðu þegar hlaðið niður skjölunum og endurbirt á GitHub áður en Anthropic fjarlægði svo skjalið í nýrri uppfærslu.

Þessi leki hefur fært almenningi og keppinautum Anthropic dýrmætar upplýsingar á silfurfati sem snúa að því hvernig mállíkanið virkar á bak við tjöldin.

Meðal þess má finna lausn Anthropic við svokallaðri „samhengisóreiðu“ (e. context entropy), en það nefnist sú tilhneiging mállíkana að ruglast í ríminu og jafnvel bulla, einkum þegar samtöl eru orðin löng. Lausn Anthropic gengur út á svokallað þriggja laga minniskerfi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×