Dómari stöðvar framkvæmdir við veislusalinn Samúel Karl Ólason skrifar 1. apríl 2026 10:01 Teikningar af veislusalnum og Hvíta húsinu. AP/Jon Elswick Bandarískur dómari stöðvaði í gær byggingu nýs veislusalar við Hvíta húsið. Hann sagði að vinnan mætti ekki halda áfram, án þess að þingið veitti henni blessun sína. Þetta sagði alríkisdómarinn Richard Leon í máli sem verndarsamtök höfðuðu gegn ríkisstjórn Donalds Trump.
Í bráðabirgðalögbanni sínu skrifaði Leon að samtökin væru líkleg til að vinna málaferli gegn ríkisstjórninni því Trump virtist hafa farið langt út fyrir valdsvið sitt með því að láta rífa austurálmu Hvíta hússins og reisa stærðarinnar veislusal þar í staðinn. „Forseti Bandaríkjanna er umráðamaður Hvíta hússins fyrir forsetafjölskyldur framtíðarinnar. Hann er hins vegar ekki eigandi hússins,“ skrifaði Leon í skipun sína, samkvæmt AP fréttaveitunni. Hann var skipaður í embætti af George W. Bush á árum áður. Starfsmenn Trumps í Hvíta húsinu hafa lýst því yfir að til standi að áfrýja þessu lögbanni. Trump sjálfur brást reiður við úrskurðinum. Í samtali við blaðamenn í gærkvöldi sagði hann að í gegnum árin hefði hann gert ýmsar breytingar á Hvíta húsinu og að hann hefði aldrei þurft samþykki þingsins fyrir þeim. Trump on Ballroom Ruling: He also said we are allowed to continue building as necessary to cover the safety and security of the white house and its grounds—that is what we are doing because everything is bullet proof glass, etc., including the ballroom.The roof is drone proof.… pic.twitter.com/qg2tawRYoB— Acyn (@Acyn) March 31, 2026 Hann tjáði sig einnig um lögbannið á Truth Social þar sem hann ítrekaði að þingið hefði aldrei gefið samþykki fyrir breytingum á Hvíta húsinu, hvort sem þær væru umfangsmiklar eða ekki. Í þessu tilfelli hefði þingið ekkert um málið að segja þar sem verið væri að byggja fjögur hundruð milljón dala veislusalinn fyrir peninga sem hefðu fengist gefins frá einkaaðilum, auðugum Bandaríkjamönnum. Færsla Trumps á Truth Social. Hvíta húsið tilkynnti að til stæði að byggja veislusalinn síðasta sumar. Í október var búið að rífa austurálmu Hvíta hússins en það var gert án alls samráðs við eftirlitsaðila sem ættu að hafa eitthvað um málið að segja. Seinna í vikunni á sérstök nefnd sem á að halda utan um framkvæmdir á opinberum byggingum og svæðum í Washington DC að veita byggingu veislusalsins blessun sína. Henni er stýrt af Will Scharf, sem starfar í Hvíta húsinu og er ráðgjafi Trumps. Sjá einnig: Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Carol Quillen, sem stýrir verndarsamtökunum National trust for historic preservation, sem höfðuðu lögsóknina gegn ríkisstjórninni, sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hún fagnaði lögbanninu. Hún segir forsvarsmenn samtakanna ánægða með niðurstöðuna. Um mikinn sigur fyrir bandarísku þjóðina sé að ræða varðandi framkvæmdir sem munu hafa varanleg áhrif á einn ástsælasta stað Bandaríkjanna. Framkvæmdir hafa staðið yfir um nokkuð skeið og stóð til að hefja framkvæmdir á yfirborðinu í þessum mánuði.AP/Jacquelyn Martin Lögbannið tekur ekki gildi fyrr en eftir fjórtán daga en Leon skrifaði að hann væri meðvitaður um það að flókið væri að stöðva vinnuna sem væri þegar hafin og sagðist meðvitaður um að ákvörðun sinni yrði áfrýjað. Þá sagði dómarinn að vinna sem ætti að tryggja öryggi í Hvíta húsinu gæti haldið áfram. Trump hélt því fram við blaðamenn í gær að vinna varðandi neðanjarðarbyrgi og aðrar öryggisráðstafanir á lóð Hvíta hússins gæti haldið áfram, jafnvel þó greitt sé fyrir þær með peningum ríkisins. Framkvæmdir á yfirborðinu eiga að hefjast í þessum mánuði. Frá því hann tók aftur við embætti forseta í fyrra hefur Trump varið miklu púðri í að koma nafni sínu á sem flesta hluti og stofnanir í Bandaríkjunum, auk þess sem hann hefur reynt að setja mark sitt á Bandaríkin, Hvíta húsið og embættið með öðrum hætti. Má þar nefna: The John F. Kennedy memorial center for the performing arts, sem heitir nú „The Donald Trump and The John F. Kennedy memorial center for the performing arts. Friðarstofnunina svokölluðu sem heitir nú Donald J. Trump Friðarstofnun Bandaríkjanna. Nýja tegund herskipa sem eiga að bera nafn Trumps, þó að fyrsta skipið í flokknum muni heita Defiant en flokkar bera yfirleitt nafn fyrstu skipanna. Trump gold card, sem eru kort sem auðugir innflytjendur geta greitt fyrir og fengið ríkisborgararétt með því. TrumpRx, sem er opinber vefsíða þar sem fólk á að geta fengið ódýrari lyf. Þá stendur til að nefna nýja tegund herþota X-47, eftir Donald Trump, sem er bæði 45. og 47. forseti Bandaríkjanna. Nýjar forsetaflugvélar Bandaríkjanna munu bera sömu liti og einkaflugvélar hans sjálfs. Trump hefur einnig viljað setja mynd af sér á og George Washington á aðgangspassa fyrir þjóðgarða í Bandaríkjunum. Engin hefð hefur verið fyrir því en passarnir hafa alltaf verið skreyttir með myndum úr þjóðgörðum. Ríkisstjórn Trumps hefur einnig reynt að fá Dulles-flugvöllinn í Washington DC nefndan í höfuðið á honum. Flugvöllurinn er nefndur í höfuð Johns Foster Dulles, sem var utanríkisráðherra í forsetatíð Dwights D. Eisenhower. Á hans fyrsta kjörtímabili skreytti undirskrift Trumps ávísanir sem sendar voru til allra Bandaríkjamanna vegna faraldurs Covid.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Eldur logaði í Stykkishólmi Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Fleiri fréttir Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Sjá meira