„Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Boði Logason skrifar 2. apríl 2026 11:02 Mugison er fyrsti gestur Björns í hlaðvarpinu Allt í lagi sem verður frumsýnt á Vísi á laugardaginn. Allt í lagi Björn Skúlason, eiginmaður Höllu Tómasdóttur forseta, er að byrja með nýtt hlaðvarp, sem nefnist Allt í lagi. Í þáttunum ræðir hann við íslenskt tónlistarfólk um lífið og tilveruna.
Fyrsti þátturinn verður frumsýndur á Vísi á laugardaginn og er fyrsti gesturinn Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison. Þættirnir koma út hálfsmánaðarlega og verða átta talsins. Þættirnir eru hluti af árverkniátaki Hugarafls, Allt í lagi, sem hefur það að markmiði að opna umræðu um andlega heilsu og hvetja fólk til að nýta sér úrræði þegar á reynir. Klippa: Mugison - stikla Í tilkynningu frá Hugarafli segir að það sé ekki tilviljun að Mugison sé fyrsti gesturinn í þáttunum, hann hafi verið áberandi í herferðinni ásamt fleira tónlistarfólki. Í henni sé meðal annars beint sjónum að því hvernig listafólk tjáir flóknar tilfinningar í tónlist sem almenningur geti speglað sig í. Björn er nýr í hlutverki hlaðvarpsstjórnanda en segir reynsluna hafa verið bæði sérstaka og gefandi. Hann er verndari Hugarafls og þekkir starfsemi samtakanna vel. Erum öll manneskjur „Það var ákveðin töfrastemning í stúdíóinu. Þar fékk ég að ræða við listafólk sem hefur hvert á sinn hátt mótað íslenskt tónlistarlíf. Sem spyrjandi í þessum samtölum sat ég augliti til auglitis við fólk sem við lítum upp til – tónlistarfólk sem stendur í sviðsljósinu og virðist stundum ósnertanlegt, fullt af sjálfstrausti og gefur gríðarlega mikið af sér í gegnum list og sköpun. En þegar samtalið dýpkar sér maður að þar, eins og hjá okkur öllum, eru líka sár á sálinni, efasemdir og leit að jafnvægi,“ er haft eftir Birni í tilkynningu. Hlaðvarpið minni fólk á að enginn sé undanskilinn erfiðum tímum. „Kannski er það ástæðan fyrir því að þessi hlaðvörp skipta máli: þau minna okkur á að við erum öll manneskjur. Við förum öll í gegnum hæðir og lægðir og stundum getur okkur liðið illa. Og þegar það gerist er engin skömm í því að biðja um hjálp,“ segir hann. Hægt verður að hlusta og horfa á þættina á Vísi. Fyrsti þáttur verður frumsýndur á Vísi á laugardagsmorgun. Hugarafl eru grasrótarsamtök fólks með andlegar áskoranir á Íslandi. Starfsemin er opin öllum 18 ára og eldri sem vilja vinna í geðheilsu sinni á eigin forsendum. Hún er gjaldfrjáls, óháð búsetu og ekki er krafist tilvísunar né greiningar. Herferðin Allt í lagi er samstarfsverkefni Orkusölunnar og Sýnar og kemur að henni fjöldi aðila, þar á meðal auglýsingastofan BIEN, hönnunarstofan Strik og framleiðslufyrirtækin Sensor TV og Skjáskot. Vísir er í eigu Sýnar.
Heilsa Hugarafl - Allt í lagi Halla Tómasdóttir Forseti Íslands Mest lesið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Bíó og sjónvarp Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Fleiri fréttir Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Sjá meira