Vilja fá valdið aftur Smári Jökull Jónsson skrifar 1. apríl 2026 21:00 Fjömörg málefni brenna á Grindvíkingum fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Vísir Yfir þrjátíu prósent þeirra sem verða á kjörskrá í Grindvík í sveitarstjórnarkosningum í vor eru með lögheimili í öðru sveitarfélagi. Oddvitar þeirra tveggja flokka sem tilkynnt hafa framboð telja húsnæðismál eitt stærsta málið og íbúarnir vilja völdin aftur í hendur bæjaryfirvalda.
Þrjú hundruð og fimmtíu manns með lögheimili utan Grindavíkur hafa skráð sig á kjörskrá í bænum fyrir sveitastjórnarkosningarnar í maí. Frestur til að bæta sér á kjörskrá rennur út á miðnætti og gæti þessi hópur því stækkað en um 2500 manns voru á kjörskrá í bænum í síðustu kosningum. Brottfluttir Grindvíkingar geta valið hvort þeir kjósa í Grindavík eða í því sveitarfélagi þar sem þeir búa nú. Er þetta vegna breytingar á lögum til bráðabirgða og hugsað svo þeir sem nauðbeygðir fluttu úr bænum í kjölfar rýmingar geti haft áhrif á uppbyggingu bæjarins. „Það er afar ánægjulegt að svona margir hafi bætt sér á kjörskrá og mér finnst það sýna að samfélagið stendur saman,“ segir Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar Grindavíkur og oddviti Framsóknarflokksins í kosningunum í vor. Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur eru einu tveir flokkarnir sem tilkynnt hafa um framboð í sveitarfélaginu þann 16. maí. Ásrún Helga er forseti bæjarstjórnar og oddviti Framsóknar í Grindavík.Vísir/Ívar Fannar „Við erum að höfða til þessa fólks að kjósa hérna heima til að geta haft áhrif á uppbyggingu okkar og samfélagið okkar þó það hugsi sér kannski ekki til hreyfings akkúrat á þessum tímapunkti,“ segir Guðbjörg Eyjólfsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokks. Húsnæðismálin stærsta málin en ósýnilegir þröskuldar þvælast fyrir Oddvitarnir eru sammála um að húsnæðismálin séu stærsta kosningamálið. „Nú er það svo að Þórkatla á nánast öll húsin hérna í Grindavík. Stærsta áskorunin er að samningar um endurkaupaáætlun, sem Þórkatla ætlar að leggja fyrir okkur, verði þannig að fólk geti og treysti sér til að gangst við þeim samningi,“ segir Guðbjörg. Guðbjörg Eyjólfsdóttir er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Grindavík.Vísir „Að fá fólkið heim aftur, það er stærsta áskorunin okkar á næsta kjörtímabili. Til að geta reist og endurreist samfélag þá þurfum við fólkið. Skólastarfið verður áskorun og rekstur bæjarins. Þetta verður erfitt kjörtímabil en ég trúi því að það verði samvinna og samheldni,“ bætir hún við. Guðbjörg hefur verið formaður hagsmunasamtakanna Járngerðar síðustu misserin og segir upplifun Grindvíkinga að í vegi þeirra sé ósýnilegur þröskuldur sem erfitt sé að átta sig á. „Það er Grindavíkurnefndin, það er Þórkatla, það er Almannavarnir og hver bendir á hvern annan. Að sjálfsögðu er öryggi okkar hér númer eitt, tvö og þrjú. Það er fyrsta forsenda fyrir því að fólk geti komið heim. Við höfum öll verið að vinna að því markmiði og við getum okkur er treystandi til að þess að vera hérna heima sjálf og sjá um þessa þætti.“ Ásrún er einnig á því að húsnæðismálin séu stærsta málið. „Og hvernig málin þróast hér varðandi uppbyggingu samfélagsins, skólamál og annað.“ Samstaða um málin og sjá fram á gott samstarf Hún segist skynja spennu í samfélaginu vegna kosninganna. „Ég held að það sé mikilvægt að það skapist góð stemning í kringum kosningar hér í Grindavík. Við erum að róa í svipaða átt, kosningarnar snúast um ákveðin málefni sem við þurfum að leysa úr og ég held að það sé fín samstaða um þau.“ Báðar tala þær um samvinnu bæjarstjórnar þó þær séu oddvitar sitthvors flokksins. „Við höfum unnið mjög þétt saman bæjarstjórn Grindavíkur á þessu kjörtímabili. Ég sé fram á áframhaldandi gott samstarf, það verður að vera þannig. Við þurfum allar hendur á dekk, verkefnin eru ærin og ég held að kosningamálin snúist um ákveðin mál og svo setur hvert framboð sinn sjarma á þau,“ segir Ásrún. „Við Sjálfstæðisflokurinn og Framsóknarflokkurinn höfum alltaf átt gott samstarf hér í Grindavík. Báðir þessir flokkar eru skipaðir góðu fólki sem er samstíga um verkefnin og það er aðalmálið,“ bætir Guðbjörg við. Íbúarnir vilja völdin aftur til Grindavíkur En hvað segja þeir sem ætla sér að kjósa í Grindavík að séu mikilvægustu kosningamálin? „Að við fáum að ráða okkur sjálf, hætta þessari stjórnun frá Reykjavík. Við höfum alveg fullt vit til þess. Ég er búin að búa hér síðan í apríl 2024 og ætla að búa hér þar til ég fer síðustu ferðina,“ segir Kristólína Þorláksdóttir. Kristólína Þorláksdóttir hefur búið í Grindavík allt sitt líf.Vísir Pétur Pálsson er framkvæmdastjóri fiskvinnslunnar Vísis og öryggismálin eru honum ofarlega í huga. „Þá á ég við að Grindvíkingar taki öryggismálin í eigin hendur vegna þess að framsetning þeirra sem sjá um að upplýsa okkur er alls ekki nógu góð.“ Öryggismálin eru ofarlega í huga Péturs Pálssonar, framkvæmdastjóra Vísis.Vísir Kristín Pálsdóttir nefndi öryggismálin og sagði mikilvægt að fá fólk til að trúa því að í Grindavík sé hægt að vera og byggja upp samfélagið. „Húsnæði og skólamálin og tilverurétturinn okkar. Að við fáum að ráða, að við Grindvíkingar fáum valdið til okkar og fáum til þess gott fólk.“ Kristín Pálsdóttir segir húsnæðis- og skólamál stóru málin fyrir kosningarnar.Vísir Rakel Vilhjálmsdóttir kýs í fyrsta sinn í kosningunum í vor. „Ég myndi segja atvinnulífið, uppbygging á bæjarlífinu og að íþróttirnar séu spilaðar hér heima eins og verið er að gera núna, segir Rakel og er ekki lengi að hugsa þegar hún er spurð hvernig hún vill sjá Grindavík í framtíðinni. Rakel Vilhjálmsdóttir kýs í Grindavík í fyrsta sinn í vor.Vísir „Að þetta verði bara aftur gamla góða Grindavík.“
Grindavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Innlent Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Innlent „Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ Innlent Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Innlent Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Innlent „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Innlent Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Innlent Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Erlent Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Innlent Átján ára sótti áfengissendingu Innlent Fleiri fréttir Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Flestir strikuðu yfir Ásdísi Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Aðildarviðræður gætu kostað tæpa tvo milljarða Nýjustu vendingar, sviðin píla á vettvangi og kaldar móttökur Maðurinn með hnífinn enn ófundinn „Stefnir í ansi góðan sumardag“ Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Átján ára sótti áfengissendingu „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Tilkynnt um mann með hníf við skóla í Hafnarfirði Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Framsókn og óháðir og Viðreisn í meirihlutaviðræðum Skúli Tómas fer fram á frávísun morðákæru Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Eftirlit með smíði Þjórsárbrúar boðið út í óvissu um kærumál „Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Bruni í Bjarmalandi: „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Umdeild handtaka í Reykjanesbæ og álit ráðherra á úrslitum kosninganna „Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ Enn varað við umferðartöfum sökum framkvæmda á Hringvegi Kannanir sögulega nærri kosningaúrslitunum Leikskólastarfsmaður ákærður fyrir að slá son sinn og annað barn Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Vilja halda samstarfinu áfram þrátt fyrir mikið fylgistap „Aðallega að meta þessa tvo kosti“ Mældur á 200 kílómetra hraða á klukkustund Sjá meira