Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 2. apríl 2026 14:29 Gylfi Þór Gíslason er ekki lengur á listanum og Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir er oddviti. Vísir/Samsett Gylfi Þór Gíslason var oddviti á lista Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ þangað til í gær en hefur nú verið tekinn af listanum. Hann sagði af sér sem formaður flokksins á Vestfjörðum og sakar meðframbjóðendur sína um undirróður.
Í morgun birti Samfylkingin í Ísafjarðarbæ breyttan framboðslista sinn. Listinn var að mestu sá sami en breytingar höfðu orðið á röð frambjóðenda og Þ. Sunnefa Elfarsdóttir fatahönnuður er í 15. sæti. Nýr oddviti er Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir sem var í 3. sæti á fyrri lista. Helgi Karl Guðmundsson er í 2. sæti en áður var hann í 8. sæti. Finney Rakel Árnadóttir er í 3. sæti en var áður í 2. sæti og Sigurður Jón Hreinsson færist upp í 4. sæti úr 5. sæti. Grafið undan sér Gylfi Þór segir tvo meðframbjóðendur sína hafa róið undir sér. Hann hafi verið sakaður um að koma dónalega fram og tala illa um meðframbjóðendur sína sem hann vísar á bug. Sigurrós Elddís Huldudóttir sem er í ellefta sæti nýja listans sagði sig af honum skömmu eftir að hann var ákveðinn vegna Gylfa. Guðmundur Ólafsson gerði hið sama en bar við persónulegum ástæðum. Haldinn var listafundur á sunnudaginn var til að bregðast við óánægju innan listans og þar kom fram að fimm manns myndu segja sig af listanum yrði Gylfi áfram oddviti. Gylfi segir Örnu Láru Jónsdóttur þingmann flokksins í kjördæminu hafa verið viðstödd fundinn en ekki gert neitt til að lægja öldurnar. Gylfi segir Kristrúnu Frostadóttur formann ekki hafa komið að þessu máli á neinn hátt og að hún hafi ekki frétt af því fyrr en eftir á. Hann ætlar áfram að taka þátt í starfi flokksins þó að hann hafi sagt upp formennskunni fyrir vestan. „Ég verð krati þangað til yfir lýkur,“ segir hann. Sameiginlegt mat Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir nýr oddviti segir það hafa verið sameiginlegt mat hópsins að þetta hafi verið nauðsynlegt skref. Heiðarleg samtöl hafi átt sér stað bæði í aðdraganda fundarins á sunnudaginn og á fundinum sjálfum um samskipti innan listans og á endanum hafi uppstillingarnefnd verið falið að undirbúa nýjan lista. „Þessi ákvörðun er ekki tekin af lettúð, heldur af þeirri ábyrgð sem við berum á að stilla saman hóp sem getur unnið vel saman og sinnt þessu verkefnum sem eru framundan,“ segir hún. Svanfríður segist einnig vonast til að Gylfi Þór haldi áfram starfi sínu í þágu Samfylkingarinnar en hann situr í verkalýðsmálaráði ásamt því að hafa gegnt formennsku undanfarin fjögur ár.
Ísafjarðarbær Samfylkingin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Sjá meira