Hafdísi blöskraði valið: „Konur sem fá ekki blómin sem þær eiga skilið“ Sindri Sverrisson skrifar 3. apríl 2026 07:01 Hafdís Renötudóttir og stöllur hennar í Val urðu Evrópubikarmeistarar í fyrra, fyrstar íslenskra liða í handbolta kvenna. Samsett/Vísir/Tiktok „Íþróttamaður Vals 2025 eru allar þær konur sem fá ekki blómin sem þær eiga skilið,“ skrifar Hafdís Renötudóttir, landsliðsmarkvörður í handbolta og leikmaður Vals, í Tiktok-myndbandi þar sem hún setur út á valið á íþróttamanni Vals um síðustu áramót.
Í myndbandinu bendir Hafdís á sig og liðsfélaga sína í handboltaliði Vals og skrifar: „Minn íþróttamaður Vals 2025“, sýnilega ósátt við að engin þeirra skyldi verða fyrir valinu. Hafdís hefur varið mark Vals síðustu þrjú ár og var í lykilhlutverki á síðasta ári þegar liðið skráði nýjan kafla í íþróttasögu Íslendinga með því að verða Evrópubikarmeistari kvenna í handbolta. Valskonur urðu jafnframt Íslandsmeistarar þriðja árið í röð í fyrra sem og deildarmeistarar, og voru þær valdar „lið ársins“ af Samtökum íþróttafréttamanna um áramótin. Það varð þó engin úr kvennaliði Vals í handbolta fyrir valinu þegar dómnefnd félagsins valdi íþróttamann Vals árið 2025. Danski markahrókurinn Patrick Pedersen, framherji karlaliðs Vals í fótbolta, hlaut nefnilega heiðurinn eftir að hafa meðal annars afrekað það að slá metið yfir flest mörk í efstu deild á Íslandi, en þar hefur hann samtals skorað 134 mörk fyrir Val. Í fyrra hafði hann náð að skora 18 mörk í 19 deildarleikjum áður en hann varð fyrir því óláni að slíta hásin í tapinu gegn Vestra í úrslitaleik Mjólkurbikarsins. Íþróttamaður Vals hefur verið valinn frá árinu 1992 þegar Halldór Einarsson, stofnandi Henson, kom hefðinni á og gaf bikar. Síðan þá hafa 14 handboltamenn hlotið nafnbótina íþróttamaður Vals, 13 fótboltamenn og 3 körfuboltamenn, og sumir oftar en einu sinni. Alls hefur karlmaður 19 sinnum orðið fyrir valinu en 14 sinnum kvenmaður.
Handbolti Fótbolti Valur Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira