Goðsögn hleður Guðjón Val og Gummersbach lofi Aron Guðmundsson skrifar 5. apríl 2026 12:15 Gummersbach er að gera frábæra hluti undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta Vísir/Anton Brink Gengi Gummersbach undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar á yfirstandandi tímabili hefur verið hreint út sagt frábært. Liðið er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti í þýsku úrvalsdeildinni og hefur nú unnið níu leiki í röð, ekki tapað leik síðan um miðjan desember á síðasta ári.
Þýska þjálfaragoðsögnin Heiner Brand er afar spenntur yfir því sem er að gerast hjá liðinu en Brand er frá Gummersbach, spilaði og þjálfaði liðið á sínum tíma. „Þetta er besta lið sem Gummersbach hefur verið með í nokkra áratugi,“ segir Brand í viðtali við DPA en hann missir varla af heimaleik hjá liðinu, er alltaf mættur í stúkuna. „Þetta eru einu leikirnir sem ég passa upp á að dagskrá mín sé laus í kringum. Ég er orðinn miku meiri stuðningsmaður liðsins undanfarin ár.“ Margir kannst við Heiner Brand sem er algjör goðsögn í handboltanum á heimsvísu.Nordicphotos/GettyImages Sögufrægt félag Uppgangur Gummersbach undir stjórn Guðjóns Vals síðan árið 2020 hefur verið mikill. Það í blandi við metnaðarfulla stjórn félagsins hefur séð liðið tryggja sér sæti í efstu deild á nýjan leik og gera sig þar gildandi. Nú gæti farið svo að Gummersbach tryggi sér sæti í Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn í tuttugu ár.“ Gummersbach á glæsta sögu. Liðið hefur tólf sinnum orðið þýskur meistari, síðast árið 1991 og einnig unnið Meistaradeild Evrópu fimm sinnum. Félagið var einn af stofnmeðlimum þýsku úrvalsdeildarinnar og varð fyrsti Þýskalandsmeistarinn í handbolta árið 1967. Árið 2019 varð félagið fyrir áfalli þegar að fall úr efstu deild var staðfest. Árið 2020 var Guðjón Valur ráðinn inn sem þjálfari. „Þremur árum frá fallinu árið 2019 sneri Gummersbach aftur í efstu deild, ekki síst vegna Guðjóns Vals og Christoph Schundler, yfirmanni íþróttamála hjá félaginu,“ segir í umfjöllun Handball World. Vel samsett lið Tveir íslenskir landsliðsmenn spila með Gummersbach. Þeir Elliði Snær Vignisson og Teitur Örn Einarsson Þá er Garðar Ingi Sindrason, ungur og efnilegur leikmaður FH á leið til Gummersbach í sumar. Elliði Snær í leik með Gummersbach Þýski kjarni liðsins er sterkur og mikil spenna er síðan ríkjandi fyrir komu spænska landsliðsmannsins Alex Dusjhebaev næsta sumar en leikmaðurinn er vel þekkt stærð í boltanum. Selst ítrekað upp Og áhuginn meðal stuðningsmanna Gummersbach er að aukast gífurlega. Selst hefur upp fjörutíu og tvisvar sinnum í röð á heimaleiki liðsins en leikvangur liðsins tekur um 4100 manns í sæti. „Þessi áhugi er ekki eðlilegur,“ segir Heiner Brand. „Það er gífurleg stemning í Gummersbach. Þegar að félagið var að ganga í gegnum sinn sigursælasta tíma á árunum í kringum 1970 í sinni tvö þúsund manna höll seldist upp á leiki kannski þrisvar sinnum.“ Fyrir liggur að liðum í Meistaradeild Evrópu fjölgar úr sextán í tuttugu og fjögur frá og með næsta tímabili og munu þrjú lið úr þýsku úrvalsdeildinni taka þátt í deildinni þar sem að annað og þriðja sæti þýsku deildarinnar gætu gefið þátttökurétt í Meistaradeildinni. Gummersbach er á mikilli siglingu um þessar mundir og vermir fjórða sæti þýsku úrvalsdeildarinnar og er aðeins einu stigi á eftir ríkjandi Þýskalandsmeisturum Fuchse Berlin sem verma þriðja sætið. Þaðan er ekki langt upp í lið Flensburgar í öðru sætinu.
Þýski handboltinn Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Sara Björk komin heim Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Fleiri fréttir Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Sjá meira