Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Agnar Már Másson skrifar 5. apríl 2026 15:33 Íranski byltingarvörðurinn birti þessa mynd af braki sem er sagt vera af bandarískum flugvélum og þyrlum sem hröpuðu við björgunaraðgerðirnar í gær. Bandarískir ráðamenn segja að Bandaríkjaher hafi sjálfur skotið flygildin niður vegna bilana sem hafi komið upp. Sepahnews/News Bandaríski flugliðinn sem bjargað var í Íran er alvarlega særður, að sögn Donald Trump Bandaríkjaforseta. Bandarískir ráðamenn segja Bandaríkjaher hafa sprengt eigin flugvélar og þyrlur í björgunaraðgerðinni vegna bilana sem komu upp. Íranir vilja meina að þeir hafi grandað vélunum.
Í morgun birti Bandaríkjaforseti færslu þar sem hann greindi frá því að Bandaríkjaher hefði ráðist í háskaför inn í íranskt landsvæði til þess að bjarga bandarískum hermanni sem hafði kastað sér úr hrapandi orrustuþotu sem hafði verið skotin niður af Írönum. Þá sagði Trump að flugliðinn fundni hefði „hlotið sár, en hann verður í lagi.“ Tugir flugvéla og þyrla hafi komið að björgunaraðgerðinni en íranskir miðlar greindu frá því að sprengingar heyrðust í nótt í nágrenni við það svæði í Suðurvestur-Íran þar sem flugvélin er talin hafa brotlent. Seinna í dag birti Trump aftur á móti aðra færslu þar sem hann sagði að flugliðinn væri „alvarlega særður“. Hann tilkynnti sömuleiðis að hann myndi halda blaðamannafund í fyrramálið um málið, sem yrði þá um klukkan 5 síðdegis að íslenskum tíma. Íranski byltingarvörðurin birti þessa mynd í dag en íranska ríkissjónvarpið hélt því fram að þarna hefðu hrapað bandarískar flugvélar og þyrlur sem áttu þátt í björgunaraðgerðinni.Sepahnews/AP AP hefur eftir ónafngreindum bandarískum ráðamanni að skömmu áður en aðgerðin hófst hefðu Bandaríkjamenn vísvitandi dreift röngum upplýsingum til þess að villa fyrir Írönum að Bandaríkjaher hefði þegar tekist að sækja flugliðann. Í gærkvöldi birti íranski ríkismiðillinn myndskeið sem sagt var vera hluti af bandarískum flugvélum sem Íranir hefðu skotið niður. Aftur á móti segja bandarískir ráðamenn við AP að Bandaríkin hefðu sjálf sprengt flugvélarnar vegna tæknilegra bilana en þess í stað ræst út aukavélar. Síðustu daga hefur Trump hótað að sprengja olíuinnviði í Íran á þriðjudag, opni Íranir ekki Hormússund á ný. „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar, annars fáið þið að búa í helvíti,“ skrifar Donald Trump Bandaríkjaforseti í orðljótri færslu á samfélagsmiðlum í dag.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Tengdar fréttir „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar, annars fáið þið að búa í helvíti,“ skrifar Donald Trump Bandaríkjaforseti í færslu á samfélagsmiðla. Hann ýjar að því að sprengja orkuver og brýr í Íran á þriðjudag, opni Íranir ekki Hormússund á ný. 5. apríl 2026 12:27 Gefur skít í helvítishótanir Trumps Íranski herinn gerir lítið úr hótunum Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sem sagði fyrr í dag að „allt færi til fjandans“ í Íran ef Íranir opnuðu ekki fyrir umferð um Hormússund eða samþykktu ekki friðarsamkomulag innan við tvo sólarhringa. 4. apríl 2026 22:10 Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Fleiri fréttir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Sjá meira
„Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar, annars fáið þið að búa í helvíti,“ skrifar Donald Trump Bandaríkjaforseti í færslu á samfélagsmiðla. Hann ýjar að því að sprengja orkuver og brýr í Íran á þriðjudag, opni Íranir ekki Hormússund á ný. 5. apríl 2026 12:27
Gefur skít í helvítishótanir Trumps Íranski herinn gerir lítið úr hótunum Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sem sagði fyrr í dag að „allt færi til fjandans“ í Íran ef Íranir opnuðu ekki fyrir umferð um Hormússund eða samþykktu ekki friðarsamkomulag innan við tvo sólarhringa. 4. apríl 2026 22:10