„Þetta er margfræg klisja“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 7. apríl 2026 22:00 Sigursteinn Arndal, þjálfari FH. Vísir/Anton Brink „Þetta var bara gríðarlega erfiður leikur eins og við vissum fyrirfram,“ sagði Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, eftir sigur liðsins gegn Haukum í fyrsta leik liðanna í undanúrslitaeinvígi Olís-deildar karla í kvöld.
Þrátt fyrir að FH-ingar hafi unnið með sex mörkum var sigur þeirra alls ekki öruggur. Liðið var undir stóran hluta leiksins og sigldi ekki fram úr fyrr en undir lokin. „Við vorum að mæta bara ofboðslega góðu Haukaliði og við héldum haus alveg til enda. Þess vegna endaði þetta svona, en þetta var hörkuleikur tveggja frábærra liða og eins týpískur Hafnarfjarðarslagur og hann verður.“ Eins og áður segir voru FH-ingar að elta stóran hluta leiksins og lengi vel leit út fyrir að liðið myndi ekki ná að taka skrefið og komast í forystu. „Við vorum líka bara undirbúnir undir það að það eru sveiflur í þessum leikjum og við þurfum að halda fókus á okkar vinnu. Halda áfram að treysta á það sem við erum að gera og mér fannst við gera það.“ „Við vorum með of marga tapaða bolta í fyrri hálfleik og fórum aðeins yfir það í hálfleik. Við breyttum aðeins vörninni og það gekk vel í seinni hálfleik. Við höldum þeim í 21 marki, enda voru vörn og markvarsla frábær í seinni hálfleik.“ En á gamla góða klisjan „sókn vinnur leiki en vörn vinnur titla“ við hjá FH-ingum. „Já þetta er margfræg klisja, en auðvitað er þetta bara rétt. Þú þarft að spila alvöru vörn ef þú ætlar að ná einhverjum árangri og vörn FH-liðsins hefur verið mjög góð í vetur. Við gerum okkur grein fyrir því að þetta er einn af okkar styrkleikum. Þetta verður að vera til staðar.“ Að lokum var Sigursteinn með nokkuð einfalda uppskrift að því hvað FH-ingar þurfa að gera til að halda góðu gengi áfram á föstudaginn. „Við þurfum bara að vera duglegir að halda áfram að undirbúa okkur, gagnrýnir á sjálfa okkur og halda í þessa vinnusemi og þennan anda sem við erum að ná fram með fólkinu okkar,“ sagði Sigursteinn að lokum.
Olís-deild karla FH Haukar Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn „Ég verð að spila“ Enski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Fleiri fréttir „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Sjá meira