Engar samningaviðræður lengur - einungis sótt um inngöngu. Þollý Rósmundsdóttir skrifar 9. apríl 2026 07:00 Í umræðunni um hugsanlega inngöngu Íslands í ESB heyrist oft það orðalag að við eigum að halda áfram eða klára samningaviðræður við sambandið og sjá samninginn. Svona rétt eins og þegar Norðmenn áttu í viðræðum við ESB fyrir rúmum þrem áratugum síðan. Nú er það svo að ESB býður ekki upp á slíkar samningaviðræður lengur. Það breyttist eftir að Norðmenn höfnuðu aðild og ESB fór að horfa austur á bóginn til hinna nýfrjálsu Austur-Evrópuríkja. Núna sækja ríki um inngöngu og við það fer í gang aðlögunarferli þar sem umsóknarríki aðlagar sig jafnt og þétt að öllu regluverki ESB. Bæklingur ESB um umsóknarferlið ESB hefur gefið út bækling um umsóknarferlið sem ber heitið "Enlargement of the European Union." Þar kemur skýrt fram á blaðsíðu tólf um hvað aðildarumsókn snýst. En þar segir meðal annars að umsóknarríki verði að aðlaga eða breyta laga og regluverki sínu til samræmis við laga- og regluverk sambandsins. Aðildarviðræður geta hafist þegar umsóknarríki hefur lagt fram áætlun um með hvaða hætti og hve fljótt það hyggst framkvæma þær breytingar samhliða viðræðunum. Hægt er að semja um frestun aðlögunar einstakra mála um skamman tíma, en engar varanlegar undanþágur eru í boði. Athugið að þetta er ekki einhver áróðursbæklingur frá andstæðingum ESB aðildar, heldur leiðbeiningar frá Evrópusambandinu sjálfu um það hvernig ferlið virkar. Stækkunarstjórar ESB tala skýrt Þetta fékk einmitt Össur Skarphéðinsson, þáverandi utanríkisráðherra, að heyra frá Stefáni Fule, fyrrum stækkunarstjóra ESB, að það væru engar varanlegar undanþágur í boði. Eins og þær sem Danir fengu til dæmis fyrir sumarhúsaeigendur. Og í sama streng tók Heather Grabbe, sérfræðingur hjá Bruegel hugveitunni í Brussel, í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins fyrir skemmstu. Þar kom fram að það væri svigrúm fyrir aðlögunartíma en varanlegar undanþágur væru ekki lengur í boði af hálfu Evrópusambandsins. Þannig er alveg ljóst að Ísland fengi aldrei neinar varanlegar undanþágur vegna sjávarútvegs eða orkuauðlinda okkar. Einungis geta verið í boði svokallaðar sérlausnir í undantekningartilfellum sem fela í sér afmarkaðar stjórnsýslubreytingar en breyta engu um það að valdið fer til ESB. Malta fékk til dæmis einungis sérlausn vegna 25 mílna smábátaveiða sinna. Þess utan er engan veginn hægt að líkja þeim saman við togaraveiðar Íslendinga í 200 mílna lögsögu okkar. Blekkingar orðaleikur Hvers vegna tala bæði utanríkisráðherra og forsætisráðherra stöðugt um það að klára viðræðurnar og sjá samning? Er þeim virkilega ekki kunnugt um þessar breyttu verklagsreglur ESB? Eða er viljandi verið að slá ryki í augu almennings með blekkingum og hálfsannindum? Það skyldi þó ekki vera að það séu þær sjálfar sem treysta ekki þjóðinni til að taka upplýsta ákvörðun um málið fyrst það þarf sífellt að stunda svona blekkingar orðaleiki? Höfundur er tónlistarkona. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar