Efnahagslegur raunveruleiki: Ísland dregst enn frekar aftur úr smáríkjum innan Evrópusambandsins Kristján Reykjalín Vigfússon skrifar 8. apríl 2026 19:01 Nú þegar ríkisstjórnin er búin að setja aðild að Evrópusambandinu (ESB) formlega á dagskrá með þingsályktunartillögu er ekki úr vegi að skoða aðeins efnahagslega stöðu smærri aðildarríkja innan ESB. Með slíkum samanburði er hægt að gera tilraun til að máta Ísland inn í þá stöðu að verða aðildarríki líkt og gert hefur verið áður m.a. í skýrslu Alþjóðamálastofnunnar Háskóla Íslands frá 2014 um áhrif aðildar (Alþjóðamálastofnun, 2014). Ég birti sambærilega grein byggða á gögnum fyrir sömu ríki árið 2025. Þá var staðan Íslandi ekki í hag. Við skulum sjá hvort staðan hefur lagast nú byrjun árs 2026. Eins og áður hef ég valið smáríki innan ESB sem eru hvað næst okkur landfræðilega, hvað líkust okkur efnahagslega, menningarlega og út frá stjórnsskipulagi. Taflan hér að neðan sýnir stöðuna á nokkrum efnahagsmælikvörðum í byrjun árs 2026 (þessar tölur eru birtar með fyrirvara) en ættu að gefa nokkuð rétta mynd af stöðunni. Í fyrsta lagi sker Ísland sig verulega úr að því leiti að verðbólga er hér á landi mun hærri en í samanburðarríkjunum og hefur reyndar verið það um áratuga skeið. Öll ríkin nema Ísland eru undir verðbólgumarkmiðum Seðlanka Íslands um 2.5% verðbólgu. Í annan stað eru stýrivextir á Íslandi margfalt hærri en í öllum hinum ríkjunum eða 7.5% á meðan stýrivextir í evruríkjunum eru 2.15% og í Danmörku 1.60% og Svíþjóð 1.75%, hér munar yfir 6% í vöxtum. Kostnaður almennings og fyrirtækja er því mun meiri á Íslandi en í samanburðaríkjunum, rekstrarumhverfið og samkeppnisstaðan að sama skapi verri. Hvað atvinnuleysi varðar þá er það lægst í Hollandi 3.9% og 4.7% á Írlandi en er 4.9% á Íslandi. Hagvöxtur er í flestum þessum ríkjum sambandsins hærri en á Íslandi á síðasta ári. Við sjáum að verg landsframleiðsla á hvern íbúa er langhæst hjá Írum og í Lúxemborg en Ísland er á svipuðum slóðum og Belgía, Svíþjóð, Danmörk og Holland. Að lokum er rétt að minna á að langtímavaxtamunur milli ESB og Íslands hefur að meðaltali verið á verið á bilinu 4-6% en skammtímavaxtamunur frá því að vera 4% og til þess að vera 16% frá stofnun evrunnar árið 2002.Vextir af húsnæðislánum innan ESB eru að meðaltali 3.37% (ECB, 2026) en um 9% á Íslandi.Nýleg umfjöllun í fjölmiðlum hér á landi um upptöku evru í Króatíu sem leiddi til mikillar lækkun stýrivaxta, verðbólgu og húsnæðisvaxta styður við þá kenningu að sambærileg þróun ætti sér stað hér á landi við inngöngu Íslands í ESB. Land Stýrivextir (europa.eu, Jan 2026) Verðbólga (OECD, Jan 2026) Atvinnuleysi (europa.eu, Jan 2026) Hagvöxtur (IMF, 2025) Verg landsframleiðsla á mann (OECD, 2024) Svíþjóð 1.75 2.1 8.8 1.9 71.000 Danmörk 1.60 0.5 6.4 2.2 81.000 Holland 2.15 2.2 3.9 1.9 81.000 Belgía 2.15 1.4 5.8 1.1 74.000 Finnland 2.15 1.7 10.0 1.3 65.000 Írland 2.15 2.2 4.7 1.3 141.000 Ísland 7.50 5.2 4.9 1.1 83.000 Lúxemborg 2.15 2.1 6.5 1.1 151.000 Austurríki 2.15 2.5 5.8 0.8 75.000 Höfundur er Lektor í Háskólanum í Reykjavík og doktor í stefnumótun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar