Ferðaþjónustan er ekki vandamálið – hún er hluti af lausninni Rannveig Grétarsdóttir skrifar 9. apríl 2026 22:01 Umræðan um ferðaþjónustu verður stundum einkennilega einföld. Annars vegar er talað um greinina eins og hún sé drifin áfram af græðgi. Hins vegar eins og hún sé enn í einhverjum stjórnlausum vexti sem þurfi stöðugt að hemja. Hvorugt gefur rétta mynd. Ef við ætlum að ræða ferðaþjónustuna af alvöru, verðum við að byrja á því að horfa á hana eins og hún er í dag: sem stærstu útflutningsatvinnugrein landsins, sem starfar í harðri alþjóðlegri samkeppni og skapar ný verðmæti inn í hagkerfið. Samkeppnishæfni Íslands skiptir öllu máli Ferðaþjónustan á Íslandi starfar ekki í tómarúmi. Við erum í beinni samkeppni við önnur lönd um sama ferðamanninn, sömu flugsætin og sömu ráðstöfunartekjurnar. Þess vegna snýst þetta ekki um sérkröfur heldur um það hvort Ísland búi við skilyrði sem standast alþjóðlegan samanburð. Í flestum þeirra landa sem við berum okkur saman við er samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar tryggð. Þar er viðurkennt að um sé að ræða útflutningsgrein sem aflar gjaldeyris og starfar á alþjóðlegum markaði. Ef Ísland velur hins vegar að þyngja byrðar á greinina á sama tíma og önnur lönd vinna markvisst að því að styrkja eigin samkeppnisstöðu, þá setjum við okkur sjálf í verri stöðu. Þetta skiptir sérstaklega miklu máli þegar breytingar eru kynntar með litlum fyrirvara. Þá er ekki sjálfgefið að fyrirtæki geti einfaldlega velt auknum kostnaði út í verð, og sjaldnast er það í raun hægt. Oft er varan þegar seld, samningar frágengnir og verð ákveðin langt fram í tímann. Þá lendir höggið beint á rekstrinum. Ekki afgreiða heila atvinnugrein sem græðgi Í umræðunni um ferðaþjónustuna heyrast stundum orð um græðgi, eins og greinin í heild sé drifin áfram af skammtímahugsun og gróðasjónarmiðum einum saman. Sú mynd er bæði ósanngjörn og óþarflega einföld. Vissulega eru innan greinarinnar fjárfestar og stærri aðilar þar sem arðsemiskröfur ráða miklu, eins og gengur og gerist í atvinnulífinu. Þar á meðal eru sjóðir sem fara með fjármuni almennings og lífeyrissparnað og gera eðlilega kröfu um ávöxtun. En það er aðeins hluti myndarinnar. Stór hluti íslenskrar ferðaþjónustu hefur verið byggður upp af einstaklingum og fjölskyldum sem fóru af stað vegna áhuga, ástríðu og trúar á því sem þau voru að skapa. Fyrir flest okkar snýst þetta ekki um að taka út sem mest í dag, heldur um að byggja upp rekstur sem við getum verið stolt af og sem stendur til framtíðar. Hjá mörgum fer það sem verður til ekki í skammtímahagnað heldur aftur inn í reksturinn, uppbygginguna og næstu skref. Þess vegna verður umræðan um „græðgi“ svo oft óviðeigandi. Hún hittir einfaldlega ekki vel þá sem hafa staðið í þessari uppbyggingu af ábyrgð, metnaði og trú á eigin starfsemi og heimabyggð. Orðræðan um „gengdarlausan vöxt“ stenst illa Það er líka vert að minna á að orðræðan um „gengdarlausan vöxt“ í ferðaþjónustu stenst illa. Samkvæmt Ferðamálastofu var fjöldi erlendra farþega árið 2025 svipaður og 2023 og 2024 og síðustu þrjú ár sambærileg við árin 2017–2019. Með öðrum orðum hefur heildarfjöldinn í raun staðið nokkuð í stað í tæpan áratug. Horfur næstu ára gefa heldur ekki tilefni til að tala eins og við séum á leið inn í eitthvert nýtt óheft vaxtarskeið. Umræðan ætti því síður að snúast um stjórnlausa útþenslu og frekar um hvernig tryggja megi samkeppnishæfni, stöðugleika og heilbrigðan rekstur í grein sem hefur verið á svipuðu róli um árabil. Af hverju þetta skiptir alla máli Þegar erlendur ferðamaður kaupir hvalaskoðun, hótelnótt, veitingar eða rútuferð er það ekki bara góð sala fyrir eitt fyrirtæki. Það eru útflutningstekjur af þjónustu, nýir peningar inn í landið sem styrkja fyrirtæki, skapa störf og skatttekjur og bæta getu hagkerfisins til að standa undir innflutningi og öðrum erlendum skuldbindingum. Þetta er grundvallaratriði sem oft gleymist í umræðunni. Ferðaþjónustan er ekki bara að færa peninga á milli innlendra aðila. Hún sækir verðmæti út fyrir landsteinana og færir þau inn í íslenskt hagkerfi. Ísland selur sig ekki sjálft Ferðaþjónustufyrirtæki leggja sjálf mikla vinnu og fjármagn í markaðssetningu. Við reynum eftir fremsta megni að kynna vöruna okkar, ná til nýrra markhópa og byggja upp eftirspurn. En það má ekki gleyma því að öflug grunnmarkaðssetning Íslands sem áfangastaðar skiptir miklu máli fyrir vörumerkið Ísland í heild, hvort sem um er að ræða ferðaþjónustu, íslensk hugverk eða íslenskar vörur. Þegar vel tekst til með slíka markaðssetningu nýtist það allri virðiskeðjunni og styrkir samkeppnisstöðu landsins. Þegar hana skortir lendir meira á einstökum fyrirtækjum að sækja eftirspurnina sjálf, sem er verkefni sem mörg lítil og meðalstór fyrirtæki ráða illa við ein og sér. Ef við ætlum að tala af alvöru um samkeppnishæfni Íslands, þá verðum við líka að tala af alvöru um markaðssetningu, framtíðarsýn og samstillt átak. Nú þarf framkvæmd Eftir mörg ár af stefnumótun er kominn tími á næsta kafla. Ferðamálastefna og aðgerðaáætlun til 2030 liggja fyrir. Nú þarf minna af óljósum skilaboðum og meira af samræmi, forgangsröðun og framkvæmd. Nú er rétti tíminn til að skapa stöðugra rekstrarumhverfi og ákveða sameiginlega hvernig við viljum þróa greinina til framtíðar. Það er erfitt að byggja langtímasýn á sífelldu raski í grunnforsendum. Ferðaþjónustan er ekki vandamálið. Hún er ein af stoðum íslensks efnahagslífs og hluti af lausninni, ef við kjósum að umgangast hana þannig. Höfundur er framkvæmdastjóri Eldingar hvalaskoðunar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Hvalir Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Skoðun Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun