„Heyrum varla í hvor öðrum“ Árni Gísli Magnússon skrifar 9. apríl 2026 20:57 Arnór Snær Óskarsson átti erfitt með að einbeita sér í hávaðanum í KA heimilinu. Valsmenn eru komnir í 2-0 í undanúrslitaeinvígi sínu gegn KA í Olís deild karla. Liðin mættust öðru sinni í KA-heimilinu í dag og lauk leiknum með þriggja marka sigri gestanna, lokatölur 30-33 eftir æsispennandi leik.
Arnór Snær Óskarsson, leikmaður Vals, átti góðan leik og var markahæstur með 10 mörk. Hann fór yfir leikinn og var að vonum ánægður með niðurstöðuna. Hvernig líður þér eftir þennan seiglusigur? „Ég veit það eiginlega ekki. Við byrjum ógeðslega vel fannst mér, fyrri hálfleikur, vorum bara með þá, svo koma þeir í seinni og ná þarna einhverjum nokkrum í röð og við smá klaufar í sókn, svo kemur bara geðveikin í húsið og við heyrum varla í hvor öðrum og við koðnum aðeins en mér fannst vel gert að missa þetta ekki og landa sigrinum.“ KA tók markmanninn út af og spiluðu sjö á móti sex sóknarlega stóran hluta síðari hálfleiks sem gekk mjög vel og Valsmenn náðu illa að eiga við það. „Við vissum að þeir myndi einhvertímann fara í það en Bjarni (Ófeigur Valdimarsson) er bara frábær þegar hann fær sinn tíma í að velja, þá er hann sturlaður, enda einn af bestu leikmönnum deildarinnar. Svo fer hann að verja hinu megin í markinu og þá er þetta orðið svakalega erfitt.“ Valur sigraði fyrsta leikinn með 18 marka mun og komst sjö mörkum yfir í fyrri hálfleik og margir sem hugsuðu líklega þá að nú gæti önnur kennslustund átt sér stað. „Við vorum komnir með fimm og þá bara allt í lagi, reynum að gefa í eins og í síðasta leik og þá kannski brotna þeir, en þeir brotna aldrei hérna í KA heimilinu. Ég er virkilega sáttur að hafa unnið þá hérna.“ „Við komum bara dýrvitlausir í næsta leik, bara eins og það sé 0-0, og ætlum bara að vinna þá þar og vonandi verður þetta bara hörkuleikur“, sagði Arnór að lokum einbeittur á að klára einvígið í næsta leik sem fram fer að Hlíðarenda á mánudaginn kemur.
Olís-deild karla Valur Handbolti KA Mest lesið Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Handbolti Hemmi og Óskar hituðu upp fyrir stórleikinn Íslenski boltinn Óvenjuleg hárgreiðsla Kristals verði til þess að fólk vanmeti hann Fótbolti Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Sjáðu vafasömu vítadómana sem gerðu Arteta „brjálaðan“ Fótbolti Mikil spenna á Akureyri og miðum fjölgað: „Gríðarleg eftirspurn“ Íslenski boltinn Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti „Þetta er smá spooky“ Körfubolti Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Kraftaverk Einars Braga og félaga dugði skammt Gísli, Ómar og Elvar tóku stórt skref í átt til Kölnar Verður Elvar liðsfélagi Hauks? „Það væri óskastaðan“ Evrópskt stórlið með augu á Degi Arnar Freyr öflugur í evrópskum Íslendingaslag Uppgjörið: ÍBV - Haukar 36-31 | Eyjakonur tryggðu sér sæti í úrslitum Stjörnurnar fá frí gegn Egyptum Uppgjörið: FH - Valur 31-25 | FH jafnaði einvígið í Krikanum Stórsigur Stjörnunnar knúði fram oddaleik Magdeburg aftur á sigurbraut eftir erfiða bikarhelgi Haukar fá enn frekari liðsstyrk frá HK Elvar og félagar luku tímabilinu með sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-23| Haukar tryggðu sér oddaleik í Eyjum Viktor Gísli áfram í stuði Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir „Einvígið fer ekki á einum manni“ „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Reynir markahæstur í þungu tapi „Langt síðan að við vorum með svona marga uppalda“ ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Úrslitaeinvígið hefst í kvöld: „Verið mikill rússíbani“ „Þetta einvígi mun ráðast á þeim“ Einar Bragi þurfti að sætta sig við tap eftir tvær framlengingar Hetjuleg frammistaða Hauks dugði ekki til sigurs Berlín batt enda á sigurgöngu lærisveina Guðjóns Vals Grótta færist nær úrvalsdeild en fall blasir við Stjörnunni Óttast hraða Vals mest en býst við frábæru einvígi Sjá meira