Bæjarfulltrúa í Grindavík misboðið: „Sleppið af okkur klónum“ Freyja Þórisdóttir skrifar 10. apríl 2026 16:55 Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra lofuðu öllu fögru á fundi ríkisstjórnar og bæjarstjórna Grindavíkur á Hótel Keflavík að sögn Birgittu. Vísir/Lýður Valberg Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, bæjarfulltrúi í Grindavík, segir Grindavíkurbæ og Grindvíkingum betur borgið án aðkomu ríkisstjórnarinnar. Ráðherrarnir Kristrún Frostadóttir og Inga Sæland hafi lofað að snúa ekki baki við þeim en ekki efnt þau loforð.
Þetta er meðal þess sem Birgitta skrifar í færslu sem hún birti á Facebook í kjölfar blaðamannafunds sem haldinn var í dag. Á fundinum kynnti Árni Þór Sigurðsson, formaður Grindavíkurnefndar, skýrslu nefndarinnar með helstu tillögum og ábendingum um framtíð samfélagsins í Grindavík. Birgitta Rán gefur lítið fyrir tillögur Grindavíkurnefndarinnar þegar kemur að hagsmunum barna. Aðsend/Vísir/Vilhelm Meðal tillagna nefndarinnar var að barnafjölkskyldur flyttu ekki aftur til bæjarins á meðan óvissa vari enn í bænum. Ekki er mælt með því að hefja skólahald á ný í Grindavík og sú tillaga sé lögð fram með hagsmuni barnanna í huga. Skólahald hefur legið niðri í bænum frá stóru rýmingunni í nóvember 2023. „Já elsku fólk, það er fyrir öllu að „farsæld barnanna sé í fyrirrúmi“ eins og Árni Þór fer inn á í þessari grein,“ segir Birgitta og vitnar þar í frétt Víkurfrétta að loknum blaðamannafundi Grindavíkurnefndarinnar í dag. Hún segir í færslunni að „það hafi nú ekki farið mikið fyrir því þegar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur féll frá öllum stuðningi við börn og fjölskyldur þeirra í lok síðasta árs“. Birgitta áfellist jafnframt starfsmenn Grindavíkurnefndar fyrir að hafa ekki skorist í leikinn þegar ákvörðunin hafi verið tekin. „Ég get ekki með nokkru móti komið því í orð hversu sárlega misboðið mér er. Mér líður hreinlega eins og í hryllingsmynd,“ segir Birgitta. Hún rifjar upp þegar bæjarstjórninni var boðið til fundar við ríkisstjórnina á Hótel Keflavík. „Kristrún og Inga Sæland töngluðust á því og lofuðu að snúa ekki við okkur bakinu. Það loforð stóð nú ekki lengi,“ segir hún um atburði fundarins. Birgitta segir að ekki sé bæði haldið og sleppt, „í guðanna bænum óheiðarlegu konur, sleppið af okkur klónum,“ segir hún.
Grindavík Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sveitarstjórnarmál Eldgos á Reykjanesskaga Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira