Eld­gos á Reykja­nes­skaga

Eld­gos á Reykja­nes­skaga

Hrina eldgosa á Reykjanesskaga hófst í mars 2021 í Geldingadölum. Það tólfta varð norðan Grindavíkur í júlí 2025.

Fréttamynd

Eld­gos enn lík­legasta sviðs­myndin

Kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni er áfram líklegasta sviðsmyndin á Reykjanesskaganum að mati Veðurstofu Íslands. Áfram mælist lítil jarðskjálftavirkni á landinu.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Við verðum að fá fólk heim aftur“

Grindvískt fjölskyldufyrirtæki vinnur nú að því að fylla upp í allt að 15 metra djúpa sprungu við íþróttahúsið í Grindavík. Framkvæmdastjórinn segir verkið snúast um að gera bæinn öruggan á ný fyrir börn og fjölskyldur.

Innlent
Fréttamynd

Reiði yfir pítsupartíi: Aug­lýst á fundi án sam­ráðs

Grindvíkingar og aðrir virðast verulega reiðir yfir því að valkyrjurnar svokölluðu hafi hist heima hjá Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, í kvöld og borðað saman pítsu. Mörgum finnst það miður þar sem Kristrún hafi verið beðin um að mæta á íbúafund í Grindavík í dag. Kristrún tilkynnti á mánudaginn að hún kæmist ekki á fundinn og spilar kvöldverðurinn ekki þar inn í.

Innlent
Fréttamynd

Grinda­vík og Hvera­gerði talin í mestri hættu vegna eld­gosa

Tvö bæjarfélög suðvestanlands, Grindavík og Hveragerði, eru á svæðum á efsta hættustigi í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Hluti Hafnarfjarðar er mjög nærri svæðum þar sem mjög mikil hætta er á hraunflæði. Líkur á gosupptökum eða hraunflæði eru annars metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins. Allar jarðvarmavirkjanir á Reykjanesfjallgarði; virkjanirnar á Reykjanesi, í Svartsengi, á Hellisheiði og á Nesjavöllum, eru staðsettar á svæðum sem flokkast á efsta hættustigi.

Innlent
Fréttamynd

Kviku­hlaup enn lík­legasta sviðs­myndin

Landris og kvikusöfnun heldur áfram með svipuðu móti og undanfarnar vikur, þar sem innstreymi kviku er hægt en stöðugt. Kvikuhlaup sem gæti leitt til eldgoss er enn talin líklegasta sviðsmyndin. 

Innlent
Fréttamynd

Vonar að skóla­starf verði í bænum þrátt fyrir til­mælin

Formaður hagsmunasamtaka um endurreisn og uppbyggingu Grindavíkur vonast til að bæjaryfirvöld haldi áfram vinnu við undirbúning skólastarfs í bænum þrátt fyrir tilmæli um að börn flytji ekki til Grindavíkur meðan óvissa varir. Margt geti breyst á stuttum tíma og mikilvægt að halda uppbyggingu áfram.

Innlent
Fréttamynd

Mesta kvikusöfnun til þessa

Aldrei hefur eins mikil kvika safnast saman undir Svartsengi síðan eldgosahrina hófst í nágrenni við Grindavík á Reykjanesskaga. En kvikustreymið hefur sömuleiðis aldrei verið hægara. Líklegasta sviðsmyndin er enn kvikuhlaup eða eldgos, sem yrði að líkindum stærra en fyrri gos.

Innlent
Fréttamynd

Vonast til að náttúran verði þeim hlið­holl

Leikskóli tekur aftur til starfa í Grindavík í ágúst ef áform bæjarstjórnar ganga eftir og þá er einnig í skoðun að innrita aftur í grunnskólann í haust. Forseti bæjarstjórnar segir að foreldrar áttatíu barna hafi hug á því að nýta sér þjónustuna.

Innlent
Fréttamynd

Veður­stofan rýnir breyttar jarð­hræringar

Vísbendingar eru um að eldvirkni við Sundhnúksgíga gæti verið að líða undir lok og unnið er að nýrri sviðsmyndagreiningu hjá Veðurstofunni. Fagstjóri aflögunarmælinga segir ekkert benda til þess að næsta gos sé yfirvofandi.

Innlent
Fréttamynd

Rífur niður hús sem hann gekk fram­hjá alla skóla­gönguna

Vinna hófst við niðurrif altjónaðra húsa í Grindavík í morgun. Verktakinn segir tilfinningarnar blendnar. Hann ætli að fara áfram á hnefanum líkt og hann hafi gert frá rýmingu bæjarins. Þá opnar matvöruverslun í bænum á næstu dögum en engin slík hefur verið í Grindavík í rúm tvö ár.

Innlent
Fréttamynd

Smá pæling frá einni sem ætlar að taka þátt í upp­byggingu Grinda­víkur

Ég á mann, fjóra stráka og tík. Við hjónin eigum Grindavík Guesthouse. Ég er í leiðsögunámi hjá EHI og hef stofnað Kvika Travel ehf. Ég ætla ekki að sitja hjá. Ég ætla að taka þátt í að byggja bæinn upp aftur. Ég skrifa þetta ekki sem sérfræðingur. Ég skrifa þetta sem mamma sem þarf að taka ákvörðun um framtíð barna sinna.

Skoðun
Fréttamynd

Kviku­hlaup og eld­gos enn lík­legasta sviðs­myndin

Kvikusöfnun undir Svartsengi er hæg en stöðug, líkt og hún hefur verið síðustu vikurnar. Samkvæmt líkanreikningum hafa nú um 22 milljón rúmmetrar af kviku safnast fyrir undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí. Þetta er eitt mesta rúmmál sem mælst hefur frá upphafi atburðanna.

Innlent
Fréttamynd

Tengsla­net veikara og and­leg líðan verri í dag en fyrir rýmingu

Fimmtán prósent þeirra sem svöruðu könnun Grindavíkurnefndarinnar um framtíðarsýn í Grindavík sjá fyrir sér að flytja þangað aftur á þessu ári. Þeir sem ekki ætla að flytja aftur á næstunni nefna í könnuninni óvissu um framvindu náttúruhamfaranna og að börn séu farin að festa rætur á nýjum stað.

Innlent
Fréttamynd

Reiknar með einu gosi í við­bót

Ekki er útilokað að skjálftahrina við Eldey endi með eldgosi, að sögn prófessors í jarðeðlisfræði. Langmestu líkurnar séu þó á einu gosi til viðbótar á Sundhnúksgígaröð. Farið sé á að síga á seinni hlutann í yfirstandandi eldvirknitímabili á svæðinu.

Innlent